viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessum málum og hef lýst því margítrekað. Ég minni á að fyrsta ræða mín sem formanns Miðflokksins á fyrsta landsþingi flokksins fjallaði nánast eingöngu um loftslagsmál og umhverfismál, en það er vegna þess að ég taldi og tel enn að verið sé að nálgast þetta stóra viðfangsefni á rangan hátt á svo mörgum sviðum. Það er nú reyndar orðið einkenni stjórnmálanna nú til dags að því stærri sem vandamálin eru þeim mun vitlausari eru lausnirnar. En já, ég held að það sé full ástæða til að hafa áhyggjur af því að það séu loftslagsbreytingar í gangi. Við mannkynið erum í eðli okkar íhaldssöm og viljum hafa hlutina eins og þeir voru því að hitt kallar á aðlögun. En þó er óhjákvæmilegt að sinna aðlöguninni og bregðast við þeim breytingum sem verða á veðurfari. Við þekkjum þetta af reynslu okkar um aldir, Íslendingar, að við höfum þurft að aðlagast breyttu veðurfari, loftslagsbreytingum, til að mynda þegar fór að kólna hér á landi og til urðu nýir jöklar og fyrri jöklar stækkuðu og landið var ekki eins búsældarlegt og áður var. Þá þurftum við að aðlagast og það var örugglega erfitt. En nú þegar er svona heldur að hlýna og jöklar að skreppa saman aftur þá þurfum við líka að aðlagast þeim aðstæðum. Sem betur fer er mannkynið búið mikilli aðlögunarhæfni en það er, eins og ég nefndi áðan, líka einkenni okkar mannanna að vera tiltölulega íhaldssöm og halda hlutunum í sama horfi og við munum reyna hvað við getum til að koma í veg fyrir breytingar sem eru til óheilla fyrir okkur.