154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[11:00]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér fannst svolítið frjálslega farið með tímalínu máls og hvað við erum að tala um hér. Ég tek undir það, og við áttum sameiginlega setu í hv. utanríkismálanefnd þegar við vorum að fást við þetta flugmál og loftslagskvóta og annað, að þetta eru gríðarlegir hagsmunir. Við erum sammála um það. En ég vil ekki gera lítið úr þeirri lausn sem við fengum til næstu ára. Það er rétt hjá hv. þingmanni að við bíðum í ákveðinni óvissu með framhaldið. Ég hefði gjarnan viljað sjá Alþjóðaflugmálastofnunina, með CORSIA-kerfið, að það hefði náðst á heimsvísu upp á samkeppnishæfni og annað vegna þess að hagsmunir okkar eru kannski mestir í fluginu, augljósir, og við ræddum heilmikið í gegnum árin þann hluta. Umsagnir Icelandair og Play í þessu máli eru mjög sannfærandi og augljóst hvað íslensku flugfélögin vilja gera. Þau leggja gríðarlega áherslu á að málið sé klárað fyrir áramót vegna þeirrar óvissu sem getur skapast varðandi þeirra málefni, málefni flugsins, sem gæti orðið þeim mjög dýr. Icelandair segir hér í síðustu málsgrein, með leyfi frú forseta:

„Icelandair leggur jafnframt mikla áherslu á að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót enda gæti það haft ófyrirsjáanlegar og neikvæðar afleiðingar fyrir samkeppnisstöðu íslenskra flugfélaga og íslensks efnahagslífs í heild sinni ef það mun dragast að innleiða reglurnar.“

Þetta verður ekki skýrara. Play er með svipaða umsögn í þessa veru. Flugfélögin líta á það sem grundvallarmál að þetta verði samþykkt. Svo þurfum við að vinna þetta áfram. Ég myndi aldrei gera lítið úr þeim samningi sem var gerður hérna um framhaldið út árið 2026 í þessu máli.