viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Jú, jú, gera lífið skemmtilegt og ódýrara að lifa. Það er bara frábært, enda hefur náðst mikill árangur í því. Það hefur líka náðst gríðarlegur árangur einmitt í loftslagsmálum í flugrekstri í heiminum. Þegar farið var úr DC-8 í 757 náðist að sparast 50% af útblæstrinum og þegar Max-vélarnar taka við af 757-vélunum þá sparast um 30, 35%, þannig að það er gríðarlegur árangur. En það þýðir ekki að tala um svona málefni í einhverjum frösum. Það er gríðarlega mikilvægt að það sé eitthvað á bak við. Og að vera með þessa gömlu frasa sem voru fyrir samninginn og rugla þessu öllu saman í einhverja furðulega tímalínu — það er svo mikilvægt þegar við erum að taka yfirvegaða umræðu um þessa hluti að það sé gert af þekkingu, rökum og farið í gegnum gögn. Ég myndi segja að þessi ár, síðustu ár þegar flugfélögin hafa komið fyrir nefndir þingsins — og það kemur meira að segja fram í umsögnunum, Play er raunverulega að segja hversu gott þetta samstarf hafi verið yfir þennan tíma. Icelandair er með mikið af flottu og flinku fólki í sínum rekstri í þessu stóra flugfélagi á íslenskan mælikvarða til að takast á við þetta. Þetta er mjög skýrt í umsögnum og í heimsóknum forsvarsmanna félagsins til hæstv. umhverfis- og samgöngunefndar og áður væntanlega utanríkismálanefndar. Þetta er bara mikið unnið í samstarfi við þau. Þau eru fyrst og fremst að hugsa um það að lifa þetta af. Ef við hefðum ekki náð þessu samkomulagi og það myndi skapast þessi óvissa núna um áramótin ef þetta samkomulag hefði ekki komið til, út árið 2026, þá væru þau í gríðarlega erfiðum málum. Flug á Íslandi og ferðaþjónusta er gríðarlega stór þáttur í okkar efnahagsumhverfi (Forseti hringir.) og það verður að halda uppi fullum rökum um hvað við erum að fást við, skynsamlegum rökum, og verja íslenska hagsmuni.