viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Herra forseti. Vél Virgin Atlantic sparaði um 70% í útblæstri. Það er staðan eins og hún er núna, það sem við köllum sjálfbært eldsneyti sem Boeing 787 Dreamliner flýgur á að fullu leyti stuðlar að 70% minnkun á útblæstri. Það sem við þurfum að gæta að hér er bara almennt hvernig við tryggjum samkeppnishæfni landsins varðandi flutninga í lofti og ég held að íslenskir flugrekstraraðilar hafi tekið mjög stór skref í innkaupum á vélum undanfarið og búið er að endurnýja flugflotann mikið. Við sjáum að á MAX-vélum minnkar útblásturinn kannski um 30, 35% á hvern sætiskílómetra. Play er með Neo-vélar, 320-seríuna, sem spara líka mikið í útblæstri miðað við hvernig verið hefur. En ég held að aðgengi sé mikilvægt — ég held að samkeppnishæfni flugvalla í framtíðinni muni tengjast þessu — að þessari íblöndun í gegnum sjálfbært flugvélaeldsneyti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að tryggja þetta og að það verði raunverulega hluti af okkar loftslagsverkefnum, vegna þess að það er öllum ljóst í þessum sal hversu mikilvægt það er að hér séu góðar samgöngur. Flugið er í algjöru lykilhlutverki, við höfum minni áhuga á að sigla mjög langar leiðir yfir Atlantshafið allt árið um kring og í vetrarveðrum. Það þarf að tryggja þetta og auðvitað eru tækifæri í grænni orkuvinnslu fyrir flugið og rafeldsneytið, það hlýtur að vera eitt af þessum miklu tækifærum sem við höfum varðandi loftslagsmálin til framtíðar. Vonandi getum við stýrt þessu með nýsköpun, sem er auðvitað hvatinn á bak við kerfið; nýsköpun og þróun á sjálfbæru eldsneyti.