viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Já, og það er auðvitað hárrétt að hvatinn á bak við kerfið er verðstýringin og það að setja gjald á losunarheimildir á markaði. Ég held að það séu mjög mikil tækifæri fram undan í orkuskiptum á þessu sviði eins og öðrum. Eins og hv. þingmaður bendir á, í þessu tilraunaflugi Virgin Atlantic, ef losunin minnkar um 70% þá sjáum við bara hvaða tækifæri eru fram undan í því. Ég segi nú ekki að menn séu að fara að hella matarolíu á vélarnar en það er hins vegar eiginlega ótrúlegt að við séum komin þangað. Það þýðir að með réttri stýringu og réttum hvötum frá stjórnvöldum getum við tekið stórstígum framförum á þessu sviði eins og öðrum. Í ljósi samkeppnishæfni er einmitt líka engin spurning um það, eins og fram hefur komið í umfjöllun nefndarinnar, að flugfélögin eru mjög meðvituð um þær breytingar sem er verið að ná með nýjum flugflota og um sparnaðinn og samdráttinn sem næst með honum og nýrri tækni. Ég held því að við séum þar öll að vinna að sama markmiði. En það þarf að gera það með réttar upplýsingar undir og leggja þær undirstöður með rannsóknum og líka með styrkingu þeirra svo að við getum tekið réttar ákvarðanir hér á löggjafarsamkomunni og nýtt okkur þau tæki sem við höfum ákveðið að nýta okkur, eins og viðskiptakerfið.