viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég hef ekki skilið þessa ákvörðun þannig að það sé vilji stjórnvalda eða þeirra sem styðja þetta frumvarp að ýta viðfangsefninu inn í framtíðina eða á undan okkur. Þess vegna er þetta aðlögun. Aðlögun þýðir það að flugrekstraraðilar og stjórnvöld eiga að laga sig að því að þessu verði hætt árið 2027. Það þýðir að það myndar þrýsting á reksturinn og myndar þrýsting á það að minnka losun, eins og fram hefur komið í umræðunni. Ég ætla nú að leyfa mér að hafa trú á því að aðlögunin sé alvörufyrirbæri sem snúist um aðlögun að breyttum aðstæðum, í ljósi þess að hagsmunagæsla stjórnvalda fór fram með þessum hætti á síðustu stundu eins og fyrir liggur. En þetta var það sem náðist samkomulag við. Svo get ég eiginlega ekki stillt mig um að nefna, af því að hv. þm. Eyjólfur Ármannsson nefnir ystu svæðin innan Evrópusambandsins, sem er vissulega rétt, t.d. Kanaríeyjar, að þar hafa aðildarríki ESB tryggt hagsmuni sinna ystu svæða með sæti sínu við borðið í Brussel. Við erum alltaf svolítið að koma í kjölfarið vegna þess að við erum ekki með í stefnumótuninni og ákvarðanatökunni frá upphafi.