viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að gera mál mitt langt þótt full ástæða væri til þess að fjalla um þetta með miklu lengri og ítarlegri hætti en hér hefur gefist kostur á. Á það hefur verið bent að hér hafi okkur verið settir ákveðnir afarkostir, með örfárra daga fyrirvara, að afgreiða málið með góðu eða illu. Það þýðir ekki að orðlengja það en þetta er afar niðurlægjandi staða, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og menn geta reynt að hugga sig við það að hafa náð einhverjum fresti. En ég held í rauninni, eftir samtöl við forsvarsmenn flugfélaganna, að þeir bindi óraunhæfar vonir við það að hér muni einhverjir ráðherrar geta kippt í einhverja spotta. Við horfumst í augu við það að þetta er bókstaflega, eins ég hef áður sagt og kallað það, lengsta og tímafrekasta erindisleysa íslenskrar utanríkisþjónustu sem gerði sitt allra besta til að fá þessu breytt, fá samninga sem tækju mið af þeim miklu lengri vegalengdum sem við búum við hér á Íslandi heldur en þar sem þetta miðast fyrst og fremst að, í borgum innan Evrópu og meginlandsins þar sem hægt er að taka lestir og vera fljótur að því. Það að okkur hafi ekki tekist að ná neinu fram öðru en gálgafresti er því miður bara sorglegt. Þetta er sorgardagur, því miður, og að óbreyttu síðasti dagur þessa þings. Frá og með 1. janúar verður ekki aftur snúið. Þegar við fengum fulltrúa atvinnulífsins til að útskýra fyrir okkur hvað fælist í öllum þessum álögum, sektum og viðurlögum og öllu þessu, þá stóðu þeir bara á gati. Háupplýstir, hámenntaðir lögfræðingar voru búnir að rýna þetta og gátu ekki svarað neinu til um það. Þetta er blygðunarlaus skattlagning á íslenskan almenning undir því yfirskini að okkur beri að gjalda það dýru verði að vera föst í gamaldags jarðefnaeldsneyti. Ég hefði talið það alveg fullkomlega ásættanlegt ef valkosturinn væri til staðar að kaupa grænt eldsneyti versus það svarta. Þá mætti gjarnan beita okkur einhverjum sektum en sá valkostur er ekki til staðar, ekki enn, og hann hefði þurft að vera kominn fyrir löngu síðan eða alla vega áður en þessir afarkostir væru. Maður vissi alltaf að maður gat valið um að borga í Hvalfjarðargöngin eða keyra lengri hringinn, en Hvalfjarðarleiðin gjaldlögð án ganganna hefði verið fráleit.
Nú horfumst við í augu við þessa stöðu. Hér er stjórnarmeirihlutinn að reyna að sefa þetta einhvern veginn og réttlæta og Evrópuflokkarnir að reyna að halda aftur af gagnrýni sinni til þess að Evrópusambandið líti nú ekki verr út en raun ber vitni. En ég segi bara: Hvað næst? Nú eru hinir allra heilögustu í bransanum að halda því fram að sauðkindin sé ábyrg fyrir kolefnisútblæstrinum og nautgripir. Verður þá landbúnaðurinn næstur til að þurfa að gjalda dýru verði sauðfjárbúskap og nautgriparækt, mjólkurbúskap?
Úr því sem komið er ætla ég að leggja fram eina hugmynd og það er minn fyrirvari á því að tilheyra þingi sem lætur þetta yfir sig ganga. Nú hafa verið seld á undanförnum árum, fyrir milljarða, svokölluð upprunavottorð. Sumir kalla þau aflátsbréf. Íslendingar hafa verið að fá milljarða fyrir það að selja sína grænu áru úr landi. Þá legg ég til, rétt eins og fyrrum fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, lagði til fyrir einhverjum misserum síðan, að það verði til þjóðarsjóður á Íslandi í krafti hins mikla gróða Landsvirkjunar sem við eigum öll. Látum þann góða þjóðarsjóð gefa okkur græna passa, okkur sem eigum hann — við eigum öll grænan passa í rassvasanum fyrir það eitt að hafa fjárfest í virkjunum og hvað það nú er — frá og með 2027. Til að þessar álögur lendi ekki beint á íslenskum almenningi þá skulum við framvísa þessum græna passa. Þá peninga sem annars væru að fara úr landi til einhverra subbukarla og -kerlinga í iðnaði í Evrópu eða annars staðar fengjum við að nota til þess að niðurgreiða óhjákvæmileg ferðalög okkar til útlanda. Hér er verið að bjóða upp á einhvers konar loftbrýr með takmörkuðum fjölda farmiða fyrir þá sem búa úti á landsbyggðinni. Við búum hér við endimörk hins byggilega heims. Seðlabankastjóra getur fundist ferðalög Íslendinga of tíð og of dýr en látum græna passann koma til móts við fólkið í landinu sem verið er að hlekkja um hálsinn á núna nýjar álögur, nýja skatta sem síðan renna beint í ríkissjóð Íslands án þess að það sé nokkuð tilgreint í hvað þeir eigi að fara.
Þetta er minn versti dagur á Alþingi, virðulegi forseti. Ég harma það að við séum sett upp við vegg með þessum hætti og enginn frestur gefinn til umræðna. Fjölmiðlar á Íslandi hafa ekki almennilega kveikt á hversu alvarlegt þetta er. Þetta hefur ekki verið í almennri umræðu sem skyldi. Það er komið að okkur með mjög harkalegum og miskunnarlausum hætti í þessu: Þið skuluð bara borga, þegja og hlýða. Ég segi: Fáum þá grænu passana okkar bara strax upp á borðið og ef ríkisstjórnin treystir sér ekki í þessar samningaviðræður þá legg ég til að við leitum kannski til manna sem gátu tekið upp hart tal, „hard talk“ eins og það hét þá. Ólafur Ragnar Grímsson þurfti að svara fyrir íslensku ríkisstjórnina á sínum tíma þegar menn voru þar mállausir og ég gæti vel ímyndað mér að menn á borð við hann gætu náð einhverju máli á þessum þremur árum sem fram undan eru áður en við verðum tekin og látin hlíta þessum afarkostum.