154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[11:50]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir innleggið hér. Ég vona að hann sé ekki að draga úr vigt orða fyrrum utanríkisráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem dró ekki úr þunga orða sinna þegar hún var að lýsa þessari stöðu sem við stæðum andspænis, að þetta væri bara eitt alvarlegasta mál sem hér hefði komið upp. Utanríkisþjónustan gerði sannarlega sitt allra besta. Það segir kannski ekki neitt um hana heldur um hörkuna sem við blasir í Evrópu. Þá segi ég enn og aftur: Hvað næst? Hvað láta þau sér detta í hug næst? Og þótt það sé ekki fallegt orð að tala um subbukarla þá erum við að tala um þá sem knýja sinn iðnað með kolum og sín orkuver. Þar er hægt að kaupa sér hreina áru frá Íslandi. Ég segi: Þeir grænu passar skulu þá bara fara til okkar sem eigum þá grænu áru og þá grænu passa og niðurgreiða þau ferðalög sem við teljum nauðsynlegt að við förum í, vegna þess að þessi skattlagning, sem þetta er — blygðunarlaus skattlagning — er ekki komin til fullrar þyngdar eða alvarleika fyrr en í lok árs 2026. Ég held að flugfélögin séu fyrst og fremst að horfa á þetta losunarheimildabix allt saman, sem er auðvitað samkeppnismál fyrir flugfélögin og hefði verið skaðræði að íslensk flugfélög hefðu ekki fengið aðild að, og þess vegna erum við að hlaupa hér og reyna að klára þetta. Þetta er hlandsprengur, svo ég noti nú annað ljótt orð. Þetta eru ekki falleg vinnubrögð. Þetta eru ekki réttlát, sanngjörn eða heiðarleg vinnubrögð, hvorki af hálfu Evrópusambandsins og allra síst tel ég að við eigum að sitja þegjandi undir því að svona sé staðið að jafn alvarlegum málum og þessu.