154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[11:52]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil ítreka mikilvægi þess sem var gert og hefur unnist á síðustu árum. Við fengum í gögnum hjá þinginu, ég held að þau séu opinber og allt það, hvað það myndi þýða ef við myndum ekki ná þessum samningi sem við náðum. Mig minnir að það hafi verið sirka 38 evrur á fluglegginn sem yrðu til. Það sem við erum að fást við hér er að meðaltalsflugleggurinn til Evrópu frá Íslandi er 2.200 km. Innan Evrópu er hann 700–800 km. Við vorum og höfum verið að reyna að fá það fram að menn virði þessa landfræðilegu stöðu okkar hér í norðvesturhluta og á nyrstu mörkum Evrópu. Það er það sem náðist og þess vegna held ég að sé bara best, í staðinn fyrir að vera með gífuryrði og nota alla frasana, að það sé verkefni okkar næstu þrjú árin, fram að 1. janúar 2027, að ná viðeigandi lausn í þessu máli. Það er verkefnið núna. Ég vona að íslensk stjórnvöld og við tökumst á við það verkefni. Í grunninn snýst þetta um að viðhalda samkeppnisstöðu landsins sem snýr að flugrekstri og samgöngum til og frá landinu. Flugið er okkar langmesta og mikilvægasta leið. Það er það sem við erum að vinna með. Með því að afneita þessu öllu saman, og það kemur alveg fram í umsögnum flugfélaganna, þá fyrst lendum við í mjög alvarlegum vandamálum. Þá mun þessi flugrekstur dragast saman um tugi prósenta mjög hratt. Það er bara þannig. Þetta yrði gríðarlegt áfall fyrir þessa starfsemi. Þannig verðum við að nálgast það sem snýr að þessum málum. Eins og ég sagði áðan um Open Skies þá er það sami samningurinn og í gegnum EES-samninginn, þar sem er verið að fást við mál frá báðum — við þurfum kannski líka að efla umræðu um þýðingu þess samnings fyrir íslenskt samfélag frá því árið 2011 (Forseti hringir.) þegar við gengum inn í það umhverfi.