viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Ég get verið sammála hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni um mikilvægi ferðaþjónustunnar og mikilvægi flugsins fyrir okkar efnahag hér. Þetta var nú það sem bjargaði okkur eftir bankaklúðrið allt saman 2008. Aðspurður sagði forsvarsmaður annars flugfélagsins sem sótti umhverfis- og samgöngunefnd heim: Hvað myndi þetta þýða frá og með 2027 að óbreyttu? Ef okkur tækist nú ekki að gera það sem okkur tókst ekki í fyrra, á þessu ári og núna þá væru þetta, fyrir Evrópu og Ameríku og til baka, allt að 30.000 kr. á legginn, 30.000 kr. til viðbótar við það verð sem er í dag. Ég held að við þurfum að horfast í augu við að það eru umtalsverðir peningar. Þess vegna segi ég, að fenginni þessari reynslu af samningaviðræðum með bestu manna atfylgi og kvenna sem leiddi okkur bara til þess að fá gálgafrest, og þessi tími er fljótur að líða: Ókei, bestu samningamenn gera sitt besta í þrjú ár og sjáum hvað gerist. Þá minni ég enn og aftur á lausn sem heitir grænn passi, sem við eigum sem kjósum að búa á Íslandi og var nú upphafið að því að hér var byggð fest á þessu landi, að hér ruku upp gufur af heitu vatni og menn sáu fram á þá kosti. Alltaf var líka talað um að þegar væri búið að niðurgreiða byggingu þessara virkjana á Íslandi þá skyldi almenningur fá raforkuverðið á kostnaðarverði. Ekki hefur það gengið eftir, því miður, en höldum okkur við hugmyndina um grænu passana. Það er þá einhver krókur á móti bragði sem gæti gert okkur kleift að lifa eðlilegu lífi án frekari íþyngjandi álaga.