154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[11:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla í þessari fyrstu ræðu minni þar sem við ræðum frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, að reyna að ná utan um stóru myndina, aðdragandann, verklagið, ógnanirnar sem við stöndum frammi fyrir í tengslum við málið og hvernig það er innleitt. Síðan ætla ég að reyna að draga fram sjónarmið sem komið hafa fram, annars vegar hjá aðilum sem undir kerfið munu falla og öðrum eftir atvikum og sömuleiðis draga fram og benda á og ræða um þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar af félögum sem undir þetta kerfi og regluverk falla og með hvaða hætti það endurspeglar það sem bíður okkar að kerfinu innleiddu.

Fyrst varðandi verklagið þá verð ég að segja að það er algert reginhneyksli að við fáum þetta mál inn í þingið þegar ellefu þingdagar voru eftir samkvæmt starfsáætlun og það bættist við einn, tólf þingdagar er svigrúmið sem þingið og þingnefnd fékk með styttum umsagnartíma aðila. Einn lykilaðili sem kom fyrir nefndina, að beiðni hennar sjálfrar, í raun krossaði sig og vottaði þingmönnum samúð hvað það varðaði að þurfa að setja sig inn í málið og reyna að átta sig á áhrifum þess á svo stuttum tíma því að í raun væri það ekki hægt, ekki bara vegna tímaskortsins heldur líka vegna þess að upplýsingar beinlínis vantaði sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á áhrifum regluverksins.

Hér er mál þar sem eru innleiddar 14 gerðir, sumar nýjar, sumar eldri og uppfærðar. Við erum fyrst og fremst að ræða tvær þeirra, reglur sem snúa að umhverfissköttum sem á að leggja á flug, millilandaflug, og umhverfissköttum sem á að leggja á millilandasiglingar. Það blasir við öllum að þetta eru lykilþættir í íslensku samfélagi og með það í huga hver landfræðileg lega Íslands er þá eru þessar samgöngur og flutningaleiðir alfa og omega alls þess sem varðar utanríkisviðskipti okkar og flutning fólks og vara til og frá landinu.

Ég verð að ítreka hér aftur áhyggjur mínar af því að okkur hafi að sáralitlu leyti gefist svigrúm til að greina aðra þætti frumvarpsins heldur en þessa tvo sem ég nefni hér og þeir svo fjarri því að vera greindir með fullnægjandi hætti að mínu mati.

Okkur hefur orðið tíðrætt hér í þingsal um þetta samkomulag sem hæstv. forsætisráðherra og Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri ráðherraráðsins, ef ég man titilinn rétt, gerðu hér í aðdraganda Evrópuhátíðarinnar í Hörpu. Það verður að halda því til haga, eins og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon gerði áðan, að það samkomulag, sem er dálítið eins og að pissa í skóinn sinn, var gert í kjölfar, eins og ráðherrar höfðu lýst, mestu aðgerðar íslenskrar utanríkisþjónustu seinni tíma til að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri. Árangurinn af þeirri stóru aðgerð sem hafði tekið langan tíma var enginn. Það er bara það sem hæstv. ráðherrar hafa sagt okkur frá hér í þinginu og í viðtölum í fjölmiðlum, hafa lýst miklum vonbrigðum með það hversu lítinn skilning Evrópusambandið sýndi sjónarmiðum Íslands. En síðan er kokkuð upp þessi tillaga sem þær semja um, hæstv. forsætisráðherra og Ursula von der Leyen, í kaffiboðinu í ráðherrabústaðnum. En það sem fæstir átta sig á eða muna eftir, eftir atvikum, kemur fram á bls. 29 í frumvarpinu, þ.e. hvað stendur í þessu samkomulagi. Þetta er allt saman tiltölulega skýrt og Evrópusambandið lítur svo á að málið sé afgreitt. Það er þessi aðlögun í gegnum 2025 og 2026 og 1. janúar 2027 tekur kerfið við íslenskum flugrekendum eins og það er, rétt eins og kerfið tekur við íslenskum skipafélögum eins og það er núna um áramótin. Ég fer í það á eftir.

Mér finnst nauðsynlegt að rifja upp út á hvað þetta samkomulag gengur. Á bls. 29 í bókinni sem rammar inn þetta frumvarp er sagt frá þessari sérstöku aðlögun fyrir Ísland:

„Íslensk stjórnvöld gerðu samkomulag við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um aðlögun Íslands við ákvæði tilskipunar (ESB) 2023/958. Hagsmunir Íslands í málinu sneru að því að jafna samkeppnisstöðu þeirra flugfélaga sem fljúga til og frá Íslandi og þeirra flugfélaga sem fljúga um aðra flugvelli innan Evrópska efnahagssvæðisins en flugleiðir til Íslands eru mun lengri en meðalflugvegalengd á milli annarra flugvalla innan Evrópu. Aðlögun fyrir Ísland felur nánar tiltekið í sér að:

1. Ísland getur framlengt núverandi kerfi endurgjaldslausra losunarheimilda út árið 2026 þegar endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda verður hætt innan Evrópska efnahagssvæðisins.“

Um þetta er það að segja að þetta er tímabil sem kerfið er í aðlögun hvort sem er, gagnvart þeim aðilum sem undir það falla. Ég hef ekki fengið greiningu á því hver viðbótarávinningur íslenskra stjórnvalda er innan þessa tímaramma en í stóru myndinni, fyrir Evrópusambandið, þá skipti þetta engu máli. Þetta var ódýrt, þetta var hundur að henda í borðið. En það var mikið með þetta gert.

En hver er síðan staðreyndin? Hvað tekur við? Þann 1. janúar 2027 tekur kerfið við eins og það er. Það er á engan hallað þegar sérstaklega eru rifjuð upp ummæli hæstv. núverandi fjármálaráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem lýsti þessu sem stærsta hagsmunamáli og flóknasta sem á fjörur utanríkisþjónustunnar hefði rekið á seinni tímum og efnahagslega er sennilega nokkurn veginn sama hversu langt aftur við förum.

Svo er það liður nr. 2:

„Ísland fær sömu sérlausn og Malta og Kýpur varðandi 100% endurgreiðslu á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti.“

Um þetta segir m.a. í umsögn Icelandair sem barst umhverfis- og samgöngunefnd 7. desember sl., með leyfi forseta:

„Í dag er mjög svo takmarkað framboð í heiminum af SAF“ — þ.e. sjálfbæru flugvélaeldsneyti — „en hlutfall þess er einungis 0,1% af öllu eldsneyti sem notað er í flugi og verðið allt að áttfalt hærra.“

Er þetta lausn sem er boðlegt að setja inn í samkomulag sem þetta þegar valkosturinn er ekki til staðar, þ.e. að segja að 0,1% af þessu sjálfbæra flugvélaeldsneyti spili eitthvert hlutverk í heildareldsneytisnotkun flugflotans sem fer hér yfir Atlantshafið og víðar? Þetta er auðvitað einhver þvæla og fullkomin sýndarmennska. Nú þegar er verðið orðið áttfalt hærra heldur en á hefðbundnu flugvélaeldsneyti og það mun bara gírast upp jafnt og þétt eftir því sem kröfurnar um íblöndun verða hærri hlutfallslega. Hér er sömuleiðis varað við því að það litla eldsneyti sem er til þessarar gerðar verði ekki í boði á Íslandi og að þar með verði óvissa uppi, eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Óvissa er til staðar varðandi ákvæði samkomulagsins um aðlögun Íslands og möguleika á að fá 100% endurgreiðslu í formi losunarheimilda á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti á flugvöllum á Íslandi. Verði SAF ekki afgreitt í dreifikerfi eldsneytis á Keflavíkurflugvelli mun aðgengi íslenskra flugfélaga að endurgreiðslu ekki vera til staðar.“

Þetta er búið að binda okkur inn í og umlykja slíkum húrrahrópum að það er eins og önnur eins viðskiptasnilld hafi aldrei áður rekið á fjörur okkar hvað varðar þann samning sem forsætisráðherra og von der Leyen gerðu í ráðherrabústaðnum.

Það er auðvitað bara þannig að það er búið að plata okkur. Það er búið að plata okkur inn í þetta kerfi Evrópusambandsins sem er hannað utan um hagsmuni þjóða sem eru allt aðrir hagsmunir heldur en við höfum hér á Íslandi. Hér er kerfi sem er ætlað til þess að troða fólki sem vill ferðast með flugvél í járnbrautarlest. Það er bara sagt eins og það er. Það er verið að búa til kerfi sem er ætlað til þess að troða fólki sem vill fljúga í járnbrautarlest. Slíkar höfum við ekki hér á landi, hvorki innan lands né milli landa. Það er alveg fráleitt fyrir Ísland, sem er í raun fremst allra þjóða og hefur verið það lengi í að nýta endurnýjanlega orku til að hita heimili og knýja áfram það sem knúið er áfram með rafmagni, að við finnum okkur í þeirri stöðu að ætla að skerða samkeppnisstöðu landsins stórlega með því að undirgangast þetta regluverk.

Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur komið í nokkur andsvör hér fyrr í dag og það var svo mikill munur á tóni hv. þingmanns í andsvörum gagnvart hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni annars vegar og hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur hins vegar að manni datt helst til hugar að hann hefði verið þvingaður til að samþykkja lög á verkfall flugvirkja á milli andsvara. En hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hafði nú jafnað sig fyrir næsta andsvar sem var á pari við það sem veitt var til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þegar hann fór í andsvar við hv. þm. Jakob Frímann Magnússon sem mæltist vel hér í ræðu sinni.

En þá kem ég að 3. lið sérstöku aðlögunarinnar fyrir Ísland þar sem segir, með leyfi forseta:

„Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar (ESB) skv. 5. mgr. 10. gr. ETS-tilskipunarinnar verður árið 2026 lagt mat á flugtengingar Íslands að teknu tilliti til samkeppnisstöðu, hættu á kolefnisleka auk umhverfis- og loftslagsáhrifa og þeirra aðlagana sem koma fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku tilskipunar 2023/958. Þetta mat mun varða veginn í viðræðum um breytingar á ETS-kerfinu.“

Þetta mat sem á að fara fram árið 2026 á að varða veginn í viðræðum um breytingar á ETS-kerfinu. Þetta er auðvitað bara eitthvert „jargon“, virðulegur forseti. Það á að fara í gegnum eitthvert mat árið 2026 og við vitum nú á hvaða hraða samningamenn Evrópusambandsins hreyfa sig þegar þeir ætla ekki að ná árangri. Ég er hræddur um að þeir sem fá þetta verkefni í hendurnar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar verði teymdir á asnaeyrunum þarna fram undir nóvember, desember 2026 og þá verði býsna mörg sund lokuð gagnvart því að verja íslenska hagsmuni.

Þetta er partur af því með hvaða hætti svona regluverki tekst að hræða líftóruna úr fyrirtækjum og rekstraraðilum sem undir regluverkið heyra. Ég mun koma betur inn á umsögn Icelandair í síðari ræðum en í umsögninni og öðrum umsögnum mörgum hverjum er lýst yfir mikilli varúð gagnvart því sem bíður ef kerfið tekur við 1. janúar 2027 eins og það er. En lokamálsgreinin sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur mikinn áhuga á að lesa upp úr undirstrikar hvað það kerfi sem búið er að þvæla okkur inn í setur fyrirtæki eins og Icelandair og Play í viðkvæma stöðu. Ég held að fyrirtækin hreinlega þori ekki öðru en að kyngja þessu eins og það er núna í þeirri von að einhvern veginn reddist þetta fyrir árslok 2026. En miðað við það hvernig 3. liðurinn er teiknaður upp hérna þá finnst mér ekki skína í gegn mikill áhugi á raunverulegri uppstokkun. Þá væri líka sú vinna í gangi miklu fyrr heldur en á árinu 2026 gagnvart einhverju sem tekur gildi 1. janúar 2027.

Það var í þessu samhengi sem við þingmenn Miðflokksins settum fram óskir okkar eða kröfur eftir atvikum, eftir því hvernig við lítum á það, við skulum kalla það óskir og ég er ánægður með að hv. umhverfis- og samgöngunefnd hafi fallist á sjónarmið þar að lútandi, þar sem við óskuðum eftir því að inn í bráðabirgðaákvæði yrði settur mekanismi þar sem stjórnvöldum yrði uppálagt að upplýsa þingið um undirbúning fyrir þessar samningaviðræður, hvernig hann gengi og hvernig á honum væri haldið og sömuleiðis þau áhrif sem kerfið hefði haft á fyrstu stigum eftir að það er innleitt á þessum undanþágutíma. Það segir í þessu ákvæði til bráðabirgða, með leyfi forseta:

„Lögð er til breyting um að við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða. Er lagt til að ráðherra skuli fyrir árslok 2024 og 2025 gefa Alþingi skýrslu um efnahagsleg áhrif ETS-kerfisins á Ísland, þar á meðal hvort Ísland njóti ekki aðlögunar í samræmi við samkomulag við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Í skýrslunni skulu koma fram upplýsingar um viðræður við Evrópusambandið vegna aðlögunar gagnvart öllum breytingum á regluverki ESB með losunarheimildir og með hvaða hætti best verður tekið tillit til sérstöðu Íslands, meðal annars vegna landfræðilegrar legu, auk annarra þátta sem kunna að varða hagsmuni Íslands þegar aðlögun í flugi, samkvæmt ákvæðum laganna, lýkur. Ásamt því skal annars vegar koma fram í skýrslunni mat á umfangi áhrifa á aðlögunartíma og hins vegar hvort óbreytt kerfi bíði íslenskra flugrekenda 1. janúar 2027, með tilliti til efnahagslegra hagsmuna þjóðarinnar og rekstrarlegra skilyrða flugrekenda.

Markmið tillögunnar er að Alþingi verði upplýst tímanlega um undirbúning og eftir atvikum viðbrögð íslenskra stjórnvalda gagnvart viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og innleiðingu þess. Ásamt því að mat á umfangi áhrifa aðlögunartíma annars vegar og ef óbreytt ETS-kerfi bíður íslenskra flugrekenda 1.janúar 2027 og hver áhrif af því yrðu fyrir efnahagslega hagsmuni þjóðarinnar og rekstrarleg skilyrði flugrekenda.“

Það sem við vildum ná fram með þessu, sem kemur fram í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, er að við hefðum tækifæri til að ná í skottið á stjórnvöldum gagnvart því hvernig þetta gengi fram þegar blasti við að málið yrði keyrt hér í gegnum þingið með þeim hætti sem ég lýsti í upphafi ræðu minnar. Ég held að það sé algjört lykilatriði fyrir okkur, ef mál þróast með þeim hætti sem ég óttast að verði raunin, að við verðum tilbúin til að stíga tímanlega inn í. Þess vegna settum við inn hér árslok 2024 og árslok 2025 sem er ári áður en aðlögunartíminn klárast. Svo verða þessi mál auðvitað í gegnum árið 2026 bara almennri umræðu undirorpin, hefðbundnum skýrslubeiðnum og fyrirspurnum og þar fram eftir götunum. En þarna er búið að setja stjórnvöld í þá stöðu að þurfa að standa fyrir máli sínu a.m.k. einu sinni innan þess kjörtímabils sem nú stendur ef þessi ríkisstjórn skakklappast til loka september 2025, sem eru allar líkur á, þykir manni.

Með því að draga slíkar upplýsingar fram þá teljum við að líkurnar aukist á því að við getum undirbúið viðbrögð sem ég tel miklar líkur á að verði nauðsynlegt að grípa til, stefni í það að 1. janúar 2027 taki regluverkið við eins og það er og mæti íslenskum flugrekendum með mjög alvarlegum áhrifum vegna þess að landfræðileg staða Íslands orsakar það að miklu meiri kostnaður fellur á íslensk flugfélög heldur en þau sem fljúga beint yfir Atlantshafið. Það mun stórraska flugrekstri hér á Íslandi; draga úr framboði, hækka verð flugmiða og svo mætti áfram telja. Það er auðvitað stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þannig að ég hef mikinn skilning á því að þeim flokki sé áfram um að þetta verði innleitt með sem mest íþyngjandi hætti. En það breytir því ekki að það getur ekki verið stefna ríkisstjórnarinnar að valda íslensku samfélagi sem mestu tjóni með þessari innleiðingu.

Ég á umtalsvert mörg atriði eftir til að fara inn á og bið því hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá og ég mun koma þeim sjónarmiðum að jafnt og þétt hér á næstunni.