viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu, ég missti reyndar aðeins af fyrri partinum, það er ekki gott. (Gripið fram í.) Það er mjög slæmt, það er skaði að því, ég var aðeins að sinna erindum varðandi fjárlögin. Ég myndi vilja spyrja hv. þingmann: Hvað myndi það þýða fyrir íslenskan flugrekstur ef við yrðum ekki hluti af þessu kerfi núna um áramótin? Hvert er mat hv. þingmanns á því varðandi starfsemi flugrekstursins, þá fyrst og fremst Icelandair og Play, og flutninga til og frá landinu? Það kemur mjög skýrt fram í umsögnum frá Play og Icelandair að þau vilja virkilega taka þátt í þessum málum. Hvaða skoðun sem við höfum á því þá líta þau á loftslagsmálin sem mjög mikilvægt mál, það kemur mjög skýrt fram í þeirra umsögnum í þessu máli. Síðan langar mig líka spyrja um möguleikana í framtíðinni fyrir Ísland, efnahagslega, varðandi þetta sjálfbæra eldsneyti og möguleika á að geta framleitt það innan lands með aukinni orkuöflun, tryggja innlent eldsneyti í Keflavík. Það eru miklar áhyggjur hjá Icelandair sérstaklega í þeirra umsögn af því að það verði ekki nægilegt aðgengi að SAF-flugvélaeldsneyti, sjálfbæru flugvélaeldsneyti, í framtíðinni í Keflavík. Áhyggjur mínar snúa að því, eins og kom fram áðan, að við verðum kannski ekki tilbúin með það. En eru þarna ekki einmitt gríðarleg tækifæri til að framleiða slíkt með notkun íslenskrar grænnar orku? Eru ekki ákveðin tækifæri líka tengt því fyrir Ísland og hagsmuni Íslands? En fyrst og fremst er það spurningin um hvaða áhrif þetta hefði á íslenskan flugrekstur núna um áramótin (Forseti hringir.) og í framhaldinu næstu árin ef við værum ekki hluti af þessu kerfi sem hér er boðað.