154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[12:37]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í umsögn Play, þar sem víða er komið við, eða einhverjir punktar, þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Sennilega er kostnaður vegna ETS-eininga stærri hluti af rekstrarkostnaði PLAY en margir gera sér grein fyrir. Það varðar félagið því verulega hagsmuni að um viðskiptakerfi ESB gildi fyrirsjáanleiki og stöðugleiki. Þetta á meðal annars við um tímasetningar á upplýsingagjöf og uppgjör á ETS-einingum. Óvissa og tafir um framkvæmd á viðskiptakerfinu auka þannig verulega líkurnar á að félagið verði fyrir umtalsverðu tjóni sem annars mætti forðast. Tímanleg innleiðing þessa reglna er því lykilþáttur í að stuðla að samkeppnishæfni og stöðugleika í rekstri og að koma í veg fyrir óþarfa tjón og verðmætamissi.“

Mig langar að spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég spurði hv. þm. Bergþór Ólason, samflokksmann hv. þingmanns: Hvað myndi gerast ef við myndum ekki klára þetta mál hér á þingi, núna um helgina væntanlega, fyrir rekstur Play og Icelandair þar sem í báðum umsögnum þessara helstu flugrekstraraðila landsins eru þessar röksemdir um mikilvægi þess að málið sé klárað út frá samkeppnishæfni og fyrirsjáanleika í rekstri félaganna?