viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég skal svara þessari spurningu og ég þarf ekki einu sinni allan tímann í það þannig að ég leyfi mér að svara líka hinni athugasemd hv. þingmanns um vonir hans og væntingar um að eitthvað gerist eftir nýársdag 2027, sem mun vera ástæðan fyrir því að hann hætti að hafa áhyggjur og hvarf frá varnaðarorðum sínum um þetta fyrirkomulag sem tekur þá gildi að fullu 2027. Ég held að hv. þingmaður sé ekki að lifa alveg í raunveruleikanum ef hann telur að Evrópusambandið taki upp á því. (NTF: Ég sagði „ekki áhyggjur eftir 1. janúar 2027“, ekki „áhyggjulaus maður“. Sagði ég það? …) Hv. þingmaður segist ekki vera áhyggjulaus. (Forseti hringir.) Hafi ég tekið of fast til orða hvað það varðar þá kemur það fram hér, frú forseti, að hv. þingmaður er ekki áhyggjulaus.
Hvað varðar hvað yrði um flugfélögin ef íslensk stjórnvöld lytu ekki í gras og gæfu eftir gagnvart Evrópusambandinu þá get ég svarað því mjög skýrt en þetta er reyndar háð því, sem er kannski ekki gefið, að íslenska ríkisstjórnin stæði með þessum fyrirtækjum og verði rétt þeirra og landsins. En ef þau yrðu ekki send inn í þetta kviksyndi þá myndi samkeppnisstaða þeirra styrkjast rétt eins og breskra og bandarískra flugfélaga. Þannig að samkeppnisstaða íslenskra flugfélaga myndi styrkjast og staða okkar hér á hnettinum yrði enn verðmætari í flugrekstri.