viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegur forseti. Hér er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða og svo ég komi inn á það sem var rætt hér í andsvörum áðan, hvað myndi gerast ef Ísland myndi ekki samþykkja þetta frumvarp? Það myndi gerast að það yrði kallaður saman fundur í sameiginlegu nefndinni, sem er sameiginleg nefnd fulltrúa ESB og EES-ríkjanna, og það yrði fundað í Brussel. Það er það sem gerist. Ef það kemur krísa upp í EES-samstarfinu er tekinn fundur í Brussel. Það mun ekkert annað gerast. Evrópusambandið færi ekki í neinar refsiaðgerðir gegn Icelandair eða Play eða íslensku samfélagi eða íslenskum stjórnvöldum. Það myndi ekki gerast. Það yrði fundur í Brussel. Það sáum við í Brexit aftur og aftur, það voru fundir í Brussel. Það gerist alltaf.
Ræðumaðurinn sem var hér í stólnum á undan mér, hv. formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, talaði um tímalínuna og mig langar aðeins að fara yfir tímalínuna, reyndar að fara aðeins lengra aftur, til ársins 1262. EES-samningurinn er langmikilvægasti samningur sem við höfum gert, alþjóðasamningur sem við höfum gert, og áhrif hans svo mikil að þau ná bæði til efnahagslífs og íslenskrar löggjafar. Það er einungis Gamli sáttmáli sem nær sömu áhrifum og þessi samningur. En hver er munurinn? Þegar Gamli sáttmáli var gerður 1262 og undirritaður tveimur árum seinna þá varð Noregskonungur jafnframt konungur Íslands og Íslendingar urðu skattþegnar Noregskonungs. Á móti skuldbatt Noregskonungur sig til þess að halda uppi siglingum til Íslands og skyldu ekki færri en sex skip koma árlega til Íslands frá Noregi. Þótti þetta misjafnlega efnt af hálfu Noregskonungs. Önnur atriði voru að koma á friði á íslenskum lögum.
Í dag erum við með Evrópska efnahagssvæðið, samninginn um EES, og þar er ekki verið að koma á íslenskum lögum heldur erum við að taka á móti tilskipunum og reglugerðum frá Brussel. Þegar Noregskonungur ætlaði að tryggja okkur sex skip — það er núna í EES-samstarfinu hætta á því að íslensk fyrirtæki, íslensk flugfélög, verði fyrir barðinu á regluverkinu frá Brussel. Svo einfalt er það. Það mun stórlega skaða samkeppnisstöðu Íslands ef við göngum algerlega undir reglur meginlands Evrópu sem eru samþykktar í Brussel. Það er munurinn. Það er ekki verið að tryggja okkur eitt eða neitt, ekki sex skip árlega, ekkert svoleiðis, ekki á jafnréttisgrundvelli. Þannig er nú staðan. Gamli sáttmáli var hylltur við allar konungshyllingar til 1664 og við erum að segja að við séum að hylla Brussel með hverri tilskipun sem við samþykkjum frá þeirri ágætu borg.
Þegar við skoðum samninginn, þetta sem liggur fyrir hér, og hvað önnur ríki hafa gert — og það kom fram í andsvörum við hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, þá spurði ég um ystu svæði, að það verður heimilt að skilgreina ystu svæði hér á landi, hér uppi á Íslandi. Það verður ráðherra heimilt að gera með reglugerð þannig að unnt verði að innleiða sambærilega undanþágu og gildir t.d. fyrir Kanaríeyjar sem nú njóta undanþágu þar sem ekki þarf að standa skil á losunarheimildum til ársloka 2030 vegna skipaflutninga frá Kanaríeyjum til Valencia á Spáni, um 900 sjómílur. Þar eru Kanaríeyjar skilgreindar sem ystu svæði út frá Spáni, sem er aðildarríki að ESB, en við getum hins vegar skilgreint ystu svæði innan Íslands. Kannski þurfum við að skilgreina Vestfirði sem ystu svæði, kannski Grímsey. Ég veit það ekki. En málið hér er líka varðandi aðlögunina að þá er litið til þess að Ísland fái sömu sérlausn og Malta og Kýpur varðandi 100% endurgreiðslu af verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti. Þetta kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu, virðulegur forseti, í kafla 3.3.1., Sérstök aðlögun fyrir Ísland.
Ég hefði haldið það að Ísland, eyja uppi í miðju Norður-Atlantshafi, væri ysta svæði, að við ættum að fá sömu stöðu og Kanaríeyjar út frá meginlandi Evrópu og kjarnanum í Evrópusambandinu. Það er ekki verið að gera það hér. Ég spurði að þessu í andsvörum við hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur. Þá vísaði hún til þess að við værum ekki í ESB-samstarfi, við værum ekki aðildarríki ESB, þess vegna gætum við ekki gætt hagsmuna okkar nægilega vel, var sem sagt að gefa það til kynna að við hefðum ekki gert það hér innan EES-samstarfsins. Við eigum að geta gætt hagsmuna okkar innan EES-samstarfsins eins og frjálst og fullvalda ríki með öllum þeim tækjum og tólum sem við höfum, algjörlega á sama hátt og ESB-ríki, og við eigum að krefjast þess að við séum skilgreind sem ysta svæði alveg eins og Kanaríeyjar. Það er ekki mikill munur á því að vera — jú, Kanaríeyjar eru ysta svæðið út frá suðurhluta Evrópu, þetta er reyndar hluti af Afríku, en við erum ysta svæði innan Evrópu. Það þarf ekki annað en skoða landakortið. En það virðist ekki vera viðurkennt. Við megum hins vegar viðurkenna innan lands að við séum með ysta svæði, kannski Grímsey, Vestfirði og guð má vita hvað, sem ráðherra hefur heimild til að skilgreina sem ystu svæði hér á landi. En við erum ystu svæðin. Það skiptir engu máli hvað tautar og raular, við erum það.
Það er eitt atriði sem er hér undir. Það er þessi blessaða aðlögun sem samið var um, að tryggja samkeppnishæfni flugrekenda hér landi út árið 2026. Eftir 2026 er ekki búið að tryggja samkeppnishæfni Íslands, svo augljóst er það, það stendur í nefndaráliti meiri hlutans. Sú aðlögun sem samið var um tryggir samkeppnishæfni flugrekenda hér á landi út árið 2026 og var talin nauðsynleg vegna landfræðilegrar legu Íslands og mikilvægis flugsamgangna fyrir þjóðarbúið. Það er alveg kristaltært að landfræðileg lega Íslands er ekki að fara að breytast eftir árið 2026. Mikilvægi flugsamgangna verður enn þá mikið ef ekki meira. Það er ekkert að fara að breytast nema það er óvissa um það hvort okkur takist að tryggja samkeppnishæfni flugrekstrar eftir árið 2026, þannig að það er verið að fresta álitamálunum hér.
Það kemur líka fram í nefndarálitinu að þeir sem menga fyrir og eru þeirrar skoðunar að allar losunarheimildir skuli vera á ábyrgð þess sem losar og að Ísland eigi ekki að skorast undan ábyrgð í þessum málum — það er enginn að tala um að Ísland sé að fara að skorast undan ábyrgð ef við tökum ekki fullan þátt í ETS-samstarfinu eins og ríkin á meginlandi Evrópu sem geta farið í lestir og annað slíkt. Við erum í samkeppni við Bretland og Bandaríkin hvað varðar flugsamgöngur. Við erum hér á Norður-Atlantshafshryggnum, hluti af eyjunni er meira að segja á Ameríkuflekanum, meginlandsflekanum, og það er styst til Ameríku frá okkur ef við fljúgum til Grænlands. Það er það sem við eigum að taka tillit til. Við verðum að horfa á hvað Bretar og Bandaríkjamenn eru að gera hvað varðar flugsamgöngur og samkeppni við flugfélög þar en ekki varðandi flugfélög í Slóvakíu, Ungverjalandi, Tékklandi, Póllandi eða Frakklandi. Ég veit að Frakkar hafa hagað málum sínum þannig að innanlandsflug er takmarkað og verið að reyna að fá fólk þar í lestarsamgöngur, markvisst verið að vinna að því. Við getum það ekki. Við erum algjörlega háð fluginu. Aðlögun fyrir Ísland felur í sér nánar tiltekið í fyrsta lagi að Ísland getur framlengt núverandi kerfi endurgjaldslausra losunarheimilda út árið 2026 þegar endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda verður hætt innan Evrópska efnahagssvæðisins. Hvað gerist eftir árið 2026 vitum við ekki, svo mikið er víst.
Annar liðurinn er mjög áhugaverður. Ísland fær sömu sérlausn og Malta og Kýpur varðandi 100% endurgreiðslu á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti. Við eigum ekki að fá sömu sérlausn og Malta og Kýpur. Við eigum að fá betri sérlausn. Af hverju? Vegna þess að landfræðileg staða Möltu er allt önnur en landfræðileg staða Íslands, t.d. í skipaflutningum. Það eru gríðarlegir skipaflutningar sem fara í gegnum Möltu. Þetta var einn af póstunum í breska heimsveldinu, það var Súez-skurðurinn, Kýpur, Malta og Gíbraltar. Það eru miklir skipaflutningar t.d. sem fara fram hjá þessum eyjum. Það er ekki hjá okkur. Við erum hérna útkjálki í Evrópu og í heiminum og það er ekki mikið um skipaflutninga fram hjá Íslandi sem Ísland gæti notið góðs af.
Varðandi flugið þá byggjum við okkar flug og Icelandair byggir sitt flug á Norður-Atlantshafsflugleiðinni og er þar í samkeppni við önnur flugfélög. Eins og kemur fram í umsögn Icelandair þá er flugið hjá Icelandair lengra í kílómetrum talið heldur en ef flogið er beint yfir hafið. Ég vil leyfa mér að vitna hér í umsögn Icelandair, með leyfi forseta:
„Muni viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir leiða til þess að flug færist frá íslenskum flugfélögum til annarra aðila þá kann samkeppnisstaða íslenskra félaga að veikjast. Þannig þarf að huga að því að samkeppnisstaða íslenskra flugfélaga, sem og annarra evrópskra flugfélaga, verði ekki skert vegna reglnanna.“
Það er grundvallaratriði. Þetta lýtur ekki bara að Íslandi heldur líka að samkeppni við Bandaríkin. Icelandair er í mikilli samkeppni á flugleiðinni yfir Norður-Atlantshafið. Það er eins og ég sagði áðan ekki innanlandsflug inn í ESB og það er ekki hægt að taka lest.
Þriðja atriðið sem varðar aðlögunina kemur fram, með leyfi forseta, í greinargerð með frumvarpinu:
„Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar (ESB) skv. 5. mgr. 10. gr. ETS-tilskipunarinnar verður árið 2026 lagt mat á flugtengingar Íslands að teknu tilliti til samkeppnisstöðu, hættu á kolefnisleka auk umhverfis- og loftslagsáhrifa og þeirra aðlagana sem koma fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku tilskipunar 2023/958. Þetta mat mun varða veginn í viðræðum um breytingar á ETS-kerfinu.“
Þannig að það á eftir að fara í þetta mat í framtíðinni þegar framlengingunni á núverandi kerfi endurgjaldslausra losunarheimilda verður hætt í árslok 2026. Það er ekki búið að leysa þetta mál enn þá en ég vona að Ísland muni geta staðið í lappirnar og gætt sinna hagsmuna og barist fyrir því að það verið litið á sérstöðu Íslands sem eyju úti í miðju Atlantshafi, það er grundvallaratriði, miðju Norður-Atlantshafi. Það er það sem skiptir máli og það að við séum við ystu svæðin í Evrópu. Það breytist ekki þó að Ísland gæti ekki hagsmuna sinna í Brussel. Landfræðileg staða Íslands mun ekki færast af því að við séum ekki að gæta hagsmuna okkar í Brussel. Þótt Brussel segi að við séum ekki ysta svæði, séum ekki í útjaðri Evrópu, af því að við erum að gæta hagsmuna okkar og við þurfum að segja: Já, það er rétt hjá ykkur, þá þýðir það bara að við erum ekki að segja sannleikann eða standa í lappirnar. Það er það sem skiptir máli. Þetta er enn eitt dæmi þess — ég ætla ekki að áfellast það að það sé búið að fresta ákvarðanatökunni — að við verðum að gæta hagsmuna okkar. Við gerðum það ekki í þriðja orkupakkanum, þegar við vorum að innleiða reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri, þegar við erum ekki með nein raforkuviðskipti yfir landamæri. Það virðist engum hafa tekist að segja það að við stundum ekki raforkuviðskipti yfir landamæri og það er enginn kapall til Evrópu. Íslensk stjórnvöld hafa kannski lært af því máli og farið að gæta hagsmuna okkar og mér skilst að við höfum verið með hátt í 130 fundi út af þessu máli í Brussel. Ég var í Brussel fyrir tveimur, þremur vikum og þá sagði sendiherrann okkur að þetta hefði verið það mál sem hefur farið gríðarlega mikil orka í og er það vel.
Ég tel að Ísland eigi að taka þátt í orkuskiptunum, standa okkur vel þar, en við eigum ekki að vera að skerða samkeppnisstöðu mikilvægs iðnaðar á Íslandi eins og flugvélaiðnaðarins og þeirra gríðarlega miklu samgangna sem eru svo mikilvægar fyrir Ísland á allan hátt. Við erum algjörlega háð fluginu, algjörlega. Það er ekki mikið um farþegaflutninga með skipum hérna og allir sem koma til og frá landinu fara í gegnum Keflavík. Á því byggist viðskiptamódelið, að fljúga yfir Atlantshafið, og það er ótrúlega góð tenging sem Íslendingar hafa við umheiminn vegna landfræðilegrar stöðu okkar og þess viðskiptamódels sem Flugleiðir hafa sett upp, sem er flugið yfir Atlantshafið. Við getum flogið til Seattle, til San Francisco, um tíma gátum við flogið til Anchorage í Alaska og við gátum flogið til nánast flestra borga Evrópu og það hefur verið miklu betri tenging frá Íslandi til Norður-Ameríku en frá Skandinavíu til Norður-Ameríku, mun betri, og það hefur verið áratugum saman. Það er kannski eitthvað að skána núna hjá Skandinövunum hvað það varðar með tilkomu nýrra flugvéla og farið að fljúga beint frá Noregi til austurstrandar Bandaríkjanna en yfirleitt í gamla daga fyrir nokkrum árum síðan þurfti allt að fara í gegnum Kaupmannahöfn. Við eigum að standa vörð um það viðskiptamódel og að það geti staðist samkeppni og verið lággjaldaflugfélag eins og það er búið að vera frá því þeir byrjuðu að fljúga til Lúxemborgar. Saga þess að Flugleiðir fóru að fljúga til Lúxemborgar er mjög áhugaverð út frá samkeppni. Þeir fengu ekki að fljúga til neinnar annarrar borgar. Það var einungis hægt að fljúga til Lúxemborgar af því að aðrar evrópskar borgir sögðu nei. Það sýnir nú alla tillitssemina sem Evrópusambandið og Evrópuríkin hafa fyrir samkeppni á flugleiðum eða a.m.k. í sögulegum skilningi. Það er mikilvægt að halda því til haga.
Ég tel að þetta sé gríðarlega mikilvægt mál og hagsmunir Íslands eru að jafna samkeppnisstöðu þeirra flugfélaga sem fljúga til og frá landinu og þeirra flugfélaga sem fljúga um aðra flugvelli innan EES. Flugleiðir til Íslands eru mun lengri en meðalflugvegalengd milli annarra flugvalla innan Evrópu. Það er líka enn eitt. Það er miklu lengra að fljúga til og frá Íslandi heldur en innan Evrópu. Það verður að taka tillit til þess. Eins og ég sagði áðan þá dettur mér helst í hug Kanaríeyjar. Spánn hefur fengið það skilgreint að Kanaríeyjar væru skilgreindar sem ysta svæði fyrir sig. Þá er það ysta svæðið frá Spáni. Málið er bara það að Ísland sem heild, við erum ysta svæði út frá Evrópu. Segjum að við værum hluti af Noregi enn þá eins og við gengumst Noregskonungi á hönd 1262, Noregur er reyndar ekki gott dæmi þar sem það er í EES — tökum bara Noreg. Ég er ekki að mælast til þess að við göngum inn í það ríki, ekki á nokkurn einasta hátt. Þá gæti Noregur skilgreint Ísland sem ysta svæði í heild en við getum ekki sagt við Brussel að við séum í heild ysta svæði. Það væri betra fyrir okkur að vera hluti af Danmörku af því að þá gætu Danir sagt á fundi í Brussel að Ísland sé ysta svæði alveg eins og Kanarí og að þeir ætli að fá sömu undanþágur eins og Kanaríeyjar fá til 2030 vegna skipaflutninga. Þetta sýnir bara delluna sem er í gangi þarna, en við getum hins vegar skilgreint ysta svæði innan lands, þannig að það er bara ekki rétt að vera að halda því fram við okkur að við getum ekki fengið betri samninga en hér hafa orðið. Við skulum rétt vona að eftir þann frest sem var fenginn núna í þessu máli út árið 2026 verði komin alvöruríkisstjórn sem getur staðið í lappirnar gagnvart Brussel-valdinu og því sem þaðan kemur. Þeir gætu a.m.k. heyrt það að við ættum að láta skilgreina okkur sem ysta svæði, líkt og Kanaríeyjar eru út frá Spáni. Það skiptir engu máli hvað það er, við getum bara sagt að við séum ysta svæði út frá Brussel, fundarherberginu þar. Svo einfalt er það.
Við eigum að sjálfsögðu að taka þátt í loftslagsmálum og ég veit það og maður sér það á umsögn Icelandair að þeir eru að standa sig gríðarlega vel og hafa mikinn metnað varðandi loftslagsmál og halda því vonandi áfram og sama er varðandi íslenskt samfélag. Við erum það langt komin að við stöndum okkur með algerum sóma þegar kemur að loftslagsmálum, meira að segja það miklum sóma að síðustu 15% til að ná algerri kolefnisjöfnun verða svo dýr fyrir okkur. Það er sennilega betra að senda brot af þeim pening, kannski einn fjórða, út í heim til Afríkuríkja svo þau minnki kolefnisútblástur sinn miklu meira en við getum náð að kroppa í okkar síðustu 20%, 15%, af því að loftslagið er nú úti um allan heim, ekki bara hér á Íslandi, þannig að ég tel að stefna okkar Íslendinga um að fara að setja 30 milljónir í loftslagsmál á Íslandi, að það sé gríðarlega dýrt, síðasti spretturinn fyrir ríki sem er komið jafn langt í loftslagsmálum með okkar hitaveitur, með okkar rafmagn, það getur kostað okkur mikið og þá er bara betra að styrkja aðra í að minnka kolefnislosun sína. Það er miklu betra. Það er reyndar umræða um annað efni. Ég tel að þetta sé áhugavert mál að mörgu leyti og gríðarlega mikilvægt og það sem kemur fram í nefndarálitinu — í umsögnum flugfélaganna Play og Icelandair til nefndarinnar er áréttað mikilvægi þess að frumvarpið verði að lögum fyrir áramótin og þá er það þessi frestur sem öllu máli skiptir.