viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég ætla hér í annarri ræðu minni við þetta mál að draga fram stóru myndina varðandi þá gerð er snýr að skattlagningu á siglingar, skipaflutninga. Fyrsta ræðan mín fór í almenna sýn og svona aðeins að kroppa í yfirborðið gagnvart fluginu. En gagnvart þeirri gerð er varðar skattlagningu á siglingar, skipaflutninga, verður að segjast að staðan er hreinlega með ólíkindum. Inn í regluverkið er beinlínis skrifað með hvaða hætti ríki eins og Ísland geta sótt undanþágur. Ríki sem eru fjarlægar eyjar frá meginlandi og njóta ekki járnbrautarkerfis, fljótasiglinga eða sambærilegs, það skín í gegn mikill skilningur á sérstöðu slíkra landa í regluverkinu sem gerðin rammar inn. En íslensk stjórnvöld ákváðu að nýta sér í engu þær undanþágur sem þar eru skrifaðar inn í kerfið. Þau sögðu bara, eins og sumir sögðu um Icesave forðum: Við höfum bara gott af því að taka þátt í þessu og borga allt upp í topp.
Hvers eigum við að gjalda þegar kerfi sem gengur út á það að draga úr sjóflutningum annars vegar og ýta síðan undir notkun umhverfisvæns eldsneytis, sem er ekki til, er farið að valda íslenskum hagsmunum verulegu tjóni? Það kom fulltrúi fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd, úr Húsi atvinnulífsins, sem svaraði því til þegar spurt var hvort hann með sína reynslu myndi eftir einhverju tilviki þar sem íslensk stjórnvöld hefðu ekki bara látið hjá liggja að sækja um undanþágu, sem blasir við að er sanngjörn og eðlileg gagnvart íslenskum hagsmunum, heldur ekki nýtt sér undanþágu sem beinlínis er skrifuð inn í regluverkið, það var bara einfaldlega þannig: Fyrir slíku eru engin dæmi. Við höfum lent í því að klúðra undanþágum og fyrirvörum vegna sofandaháttar en það eru sennilega engin dæmi þess að við höfum klúðrað stöðu Íslands og hagsmunavörslu gagnvart nokkrum hlut eins og skipaflutningunum í þessu máli. Það eru bara engin dæmi þess. Við höfum af og til sofið á verðinum og það hefur haft sínar afleiðingar en það að fara gegn hagsmunum Íslands, sleppa því að verja þá með ýtrasta hætti eins og stjórnvöldum er beinlínis skylt að gera, það mundi enginn eftir viðlíka dæmi eins og í tengslum við þetta mál er varðar ETS-reglur og losunarheimildakerfi Evrópusambandsins í siglingum. Við hökum við öll boxin, við hökum við öll þau atriði sem tilgreind eru til að við getum notið þeirra heimilda sem eru skrifaðar inn í regluverkið.
Og hvað blasir við okkur núna? Ég held að ég fari rétt með að einungis Eimskipafélagið hafi nú þegar lagt línur varðandi viðbrögð sín. Kannski er rétt að rifja upp, áður en ég kem að því, að mat skipafélaganna sem kom fram fyrir nokkru síðan var þess eðlis að þetta væri viðbótarkostnaður vegna skipaflutninga til og frá landinu upp á 6 milljarða á ári, 6.000 milljónir sem fyrirtæki og heimili bera á endanum því að þeim kostnaði verður auðvitað bara velt áfram út í verðlagið. Það liggur reyndar beinlínis fyrir að á fimmtudaginn síðasta, fyrir tveimur dögum síðan, sendi Eimskipafélagið tölvupóst á viðskiptavini sína þar sem er verið að tilkynna kostnaðarauka vegna þessa og hann er umtalsverður. Ég fer betur yfir það í ræðu hér á eftir. Fyrstu viðbrögð sem komu frá Eimskipafélaginu voru tilkynning um að það yrði gripið til hinna ýmsu aðgerða til að draga úr viðbótarkostnaði vegna þessa, m.a. var það að fækka viðkomustöðum, fækka höfnum sem skip Eimskipafélagsins sigla til. Slík þjónustuskerðing er ekki útgjaldalaus fyrir þá sem þjónustuna nýta. Landflutningar á hinum endanum verða þá lengri og dýrari þannig að það er ekki bara viðbótarkostnaðurinn í verðskrá skipafélagsins sem um ræðir heldur er það líka viðbótarkostnaður á hinum endanum gagnvart þeirri flutningshöfn sem fellur út úr þjónustu. Þetta er auðvitað það sem mun gerast með þessu kerfi. Þetta er það sem mun auðvitað gerast líka í fluginu þegar kerfið mætir íslenskum flugrekendum 1. janúar 2027 eins og það er.
Ég ætla á eftir í ræðu að fara sérstaklega í umsögn PCC á Húsavík, sem er stórmerkileg og allir ættu í raun að lesa, varðandi áhrif þessa regluverks á hagsmuni fyrirtækja á landsbyggðinni. Það er, leyfi ég mér að segja, ámælisvert að ríkisstjórnin, í þessu tilviki með utanríkisráðherra þess tíma í fararbroddi og samgöngu- og innviðaráðherra væntanlega í samstarfi sömuleiðis og umhverfisráðherra, hafi tekið ákvörðun um að láta þessi óþægindi, þennan kostnað, þessar íþyngjandi reglur leggjast á íslensk fyrirtæki og heimili af fullum þunga, algerlega að óþörfu. Það hlýtur að koma til sérstök aðgerð vegna þess sem snýr að því að vinda ofan af þessari ákvörðun stjórnvalda um að taka ekki ákvörðun til að verja íslenska hagsmuni.
Þó að ég hafi bara séð gögn frá Eimskipafélaginu þá segir mér svo hugur að það sé verið að skoða málin með nákvæmlega sama hætti hjá Samskipum og öðrum siglingaraðilum ef út í það er farið. Það er auðvitað þannig að eyja hér í miðju Atlantshafi — af því að ég fer í það í ræðu á eftir þá eru í umsögn PCC ágætlega dregnar fram þær vegalengdir sem þessi ystu svæði eru undirorpin, sem eru undir þeirri skilgreiningu innan regluverksins. Og þó að ystusvæðamálið sé bara þröngur angi af málinu í heild sinni þá er óskiljanlegt að tekin hafi verið sú ákvörðun að sleppa því bara eins og það leggur sig að verja íslenska hagsmuni í þessum efnum. Hæstv. ráðherrar hljóta eiginlega að koma hér til umræðunnar og fara yfir það stuttlega hvað lá til grundvallar þeirri ákvörðun. Varla getur það verið salamíaðferðarnálgunin, að það muni nú ekkert mikið um þessa 6 milljarða, að fyrirtækin og heimilin hljóti að geta borið það. En þó að talan verði ekki 6 milljarðar eftir að skipafélögin hafa gengið til sinna aðgerða þá liggur kostnaðurinn bara annars staðar. Kostnaðurinn liggur bara í því að þjónustuhöfnum hefur verið fækkað. Kostnaðurinn liggur í hærri gjöldum viðskiptavina skipafélaganna vegna þessa. Í þessum tölvupósti sem Eimskipafélagið sendi viðskiptavinum sínum í fyrradag þá er þessi viðbótarkostnaður bara leiddur út og hér er skema sem útskýrir: Ef einingarverð losunarheimilda er X þá er þetta viðbótarkostnaðurinn, ef það er Y þá er það þetta.
Þetta er allt gegnsætt og skýrt. Niðurstaðan er alltaf sú sama: Aukinn kostnaður fyrir íslensk heimili og fyrirtæki og íslensk stjórnvöld ákveða að segja pass. Íslensk stjórnvöld ákveða að nýta sér ekki heimildir sem eru skrifaðar inn í regluverkið. Fyrir því eru sennilega engin fordæmi. Þetta er ekki sofandaháttur, þetta er ákvörðun um eitthvað allt annað og það er í raun verra en sofandahátturinn að afsetja íslenska hagsmuni með þessum hætti.
Ég vil biðja hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá. Það eru þó nokkur atriði sem ég á eftir að koma inn á í ræðu.