viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Hér er lokakaflinn sem ég ætla að nefna úr umsögn PCC á Bakka þar sem segir, með leyfi forseta, að virtu því sem ég hef nefnt hér á undan:
„Það skýtur því skökku við að í innleiðingu viðskiptakerfis ESB hér á landi sé ekki tekið tillit til þessara aðstæðna, ekki síst í ljósi fyrirliggjandi mats ESA á því að svæði utan höfuðborgarsvæðisins teljist viðkvæm svæði, og um nauðsyn þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu utan höfuðborgarsvæðisins, hér á Norð-Austurlandi. Með upptöku viðskiptakerfisins mun — að óbreyttu — þetta sama svæði þurfa að greiða hærra gjald í formi hærri framleiðslukostnaðar en það mun draga úr samkeppnishæfni svæðisins í heild sinni þar sem vörur fjölmargra fyrirtækja á landsbyggðinni munu síður geta keppt í verði á alþjóðlegum mörkuðum.“
Þetta er hárrétt sem kemur fram í þessari umsögn PCC á Bakka. Til að setja þetta í samhengi þá er rétt að grípa niður í nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar vegna þessa máls þar sem fjallað er um umsögn PCC undir yfirskriftinni Skilgreining ystu svæða. Þar segir, til að byrja á endinum ef svo má segja, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn telur ljóst að verði tekin ákvörðun um að innleiða sams konar reglu í íslensk lög og gildir fyrir ystu svæði skv. 3-b mgr. 12. gr. án samþykkis ESB væri það brot á EES-samningnum.“
Síðan segir á undan þessu, þar sem þessi rök hafi verið höfð uppi í tengslum við flugið, með leyfi forseta:
„Evrópusambandið hafnaði þeim málatilbúnaði með þeim rökum að efnahagsleg staða Íslands og svæða sem teljast til ystu svæða væri ekki sambærileg.“ — Sem sagt ekki sambærileg þeirri efnahagslegu stöðu svæða sem falla undir það regluverk sem vísað er til í umsögn PCC. Og áfram segir:
„Þar sem efnisleg rök skorti var talið því sem næst útilokað að ESB myndi veita Íslandi undanþágu á þessum grunni hvað varðaði sjóflutninga.“
Þarna er meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar að skrifa sig frá þeim vandræðum að íslensk stjórnvöld hafa ekki sótt þær undanþágur sem þó blasa við í regluverkinu.
„Enn fremur kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins að viðræðum við Evrópusambandið um aðlaganir við upptöku tilskipunar (ESB) 2023/959 hafi lokið í lok september á þessu ári. Íslensk stjórnvöld sóttust ekki eftir aðlögun við upptöku ETS-kerfis í sjóflutningum á grundvelli þeirra raka að ESB hefði hafnað því að Ísland gæti fallið undir sömu reglur og ystu svæði ESB í flugmálinu.“
Þetta eru fulltrúar íslenskra stjórnvalda sem telja sig síðan bara geta leyst þetta allt fyrir 1. janúar 2027 og fengið gjörbreytta niðurstöðu frá því sem nú blasir við í tengslum við flugið. Þessi undanlátssemi, það er ekki hægt að kalla þetta annað en að lyppast niður í varnarhlutverkinu gagnvart íslenskum hagsmunum, ég held að þetta verði ekki skrifað neitt skýrar út en svo heiðarlega er gert hér á bls. 4 í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um þetta frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Hér er bara tönnlast á því að ESB hafni sjónarmiðum stjórnvalda í hinu og þessu. Og af því að sjónarmiðum stjórnvalda var hafnað í einu þá þora þau ekki að biðja um það í öðru. Þetta er fólkið sem ætlar sko aldeilis að leysa málið 2026. Trúir þessu einhver? Það trúir því ekki nokkur maður. Það er nú málið. Það er bara verið að kaupa sér frest fram yfir þetta kjörtímabil, þannig að vandamálið lendir í fanginu á næstu ríkisstjórn, hvort sem hún verður kosin á vormánuðum 2024 eða í september 2025, sem er síðasti neysludagur þessarar ríkisstjórnar sem við sitjum uppi með.
Það er áhugaverð klásúla sem hér kemur fram og er auðvitað dálítið þvinguð fram vegna þessarar góðu umsagnar PCC á Bakka sem gagnrýnir hvaða áhrif þetta regluverk hefur á fyrirtæki á landsbyggðinni sem er síðan rökstutt í nefndaráliti meiri hlutans þar sem er bara sagt: ESB hafnar, ESB telur engin rök fyrir þessu, ESB þetta og ESB hitt. (Forseti hringir.) Þetta er ekki sannfæringin og þetta er ekki sýnin sem mun leysa stöðuna sem skapast í flugmálunum 1. janúar 2027 og skapast strax í siglingum.
Ég bið hæstv. forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.