viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég ætla að halda áfram og reyna að klára sjónarmið mín er varða umsögn Icelandair þar sem lýst er grafalvarlegri stöðu sem mætir flugrekendum verði regluverkið — það er nú ánægjulegt að fá fulltrúa ríkisstjórnarinnar hér í umræðuna. Velkominn, hæstv. ráðherra. Ég ætla að tala um sjálfbæra flugvélaeldsneytið. Eins og kemur fram í umsögn Icelandair, með leyfi forseta:
„Í dag er mjög svo takmarkað framboð í heiminum af SAF en hlutfall þess er einungis 0,1% af öllu eldsneyti sem notað er í flugi og verðið allt að áttfalt hærra.“
Það blasir við öllum að framleiðsla á flugvélaeldsneyti verður ekki á þeim stað 1. janúar 2027 að það geri neitt gagn, ef nokkurt. Ég held að það sé útilokað að slík framleiðsla verði yfir höfuð komin af stað á þeim tíma hér á Íslandi. Því er algjör furða að innleiða regluverk til að ýta á eftir hlutum með verulega íþyngjandi kostnaði gagnvart lausnum og innleiðingu lausna sem eru ekki og verða ekki til á þeim tíma. Ég geri engar athugasemdir við það og er mjög fylgjandi því að við framleiðum næga orku til að geta m.a. framleitt eins mikið af umhverfisvænu flugvélaeldsneyti og nokkur kostur er. En við skulum ekki skaða hagsmuni Íslands í heild vegna þess. Gerum það bara, framleiðum næga orku og framleiðum flugvélaeldsneyti. Við skulum ekki vera á þeim vagni Evrópusambandsins sem er að sinna og ýta undir allt aðra hagsmuni heldur en við stöndum nokkurn tíma frammi fyrir hér í eyju úti í miðju Atlantshafi.
Það segir áfram í umsögn Icelandair, með leyfi forseta:
„Óvissa er til staðar varðandi ákvæði samkomulagsins um aðlögun Íslands og möguleika á að fá 100% endurgreiðslu í formi losunarheimilda á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti á flugvöllum á Íslandi. Verði SAF ekki afgreitt í dreifikerfi eldsneytis á Keflavíkurflugvelli mun aðgengi íslenskra flugfélaga að endurgreiðslu ekki vera til staðar. Því er ljóst að ef SAF verður ekki í boði á flugvöllum á Íslandi þá munu flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi ekki hafa aðgang að hvötunum.“
Áfram segir, með leyfi forseta:
„Fyrirsjáanlegt er að íslenskir flugrekendur geta orðið í þeirri stöðu að greiða hærra verð fyrir þotueldsneyti án þess að geta bætt frammistöðu sína í loftslagsmálum eða nýtt hvata þá sem settir eru fram í frumvarpi þessu.“
Sú mynd sem er dregin upp þarna ýtir ekki undir það að keyra frumvarpið í gegn án frekari skoðunar og glöggvunar okkar hér í þinginu á efnisatriðum þess og áhrifum. Umsögn Icelandair, sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, eini stjórnarliðinn sem hefur komið til umræðunnar, leggur svo mikið upp úr er ein samfelld varúðarræða. Það þarf ekkert að lesa á milli línanna, þetta bara stendur hérna. Svo er fjallað um kolefnisleka og mikilvægi þess að stjórnvöld gæti hagsmuna Íslands.
Nóg af umsögn Icelandair í bili. Örsnöggt yfir í umsögn Play þar sem segir, með leyfi forseta:
„Verði frumvarpið að lögum munu lögin samræma og skerpa á skyldum einkaaðila í umhverfismengandi rekstri og leggja á stjórnvöld frekari eftirlitsskyldur.“ — Þær munu auðvitað kosta eitthvað.
Áfram segir hér:
„Kostnaður flugfélaga vegna viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir er verulegur. Þessi kostnaður hefur farið hækkandi síðustu ár, samhliða verðhækkunum á ETS-einingum.“
Hver ber þennan kostnað, virðulegur forseti? Það erum við sem fljúgum og þurfum að fljúga. Við búum á Íslandi. Það er ekki ásættanleg nálgun á málið að það sé bara allt í lagi að þessi kostnaður leggist á þá sem þurfa að fljúga til og frá Íslandi og flytja vörur, bara ef hann leggst svona nokkurn veginn jafn mikið á Icelandair og Play, af því að það eru auðvitað við borgararnir sem borgum þetta, við sem hér búum. Þegar árangurinn er sá, eins og lýst er í umsögn Icelandair, að menn beinlínis geti ekki bætt frammistöðu sína eins og þetta blasir við núna, þótt þeir vildu, þá er þetta auðvitað ekkert annað en enn ein græna skattheimtan sem lendir á heimilum landsins. (Forseti hringir.) — Frú forseti. Ég verð að biðja þig um að setja mig aftur á mælendaskrá.