viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég taldi rétt að fara yfir þessa samninga eða hvað menn vilja kalla þetta, þessa aðlögun fyrir Ísland, eins og það birtist í frumvarpinu svo að ekki leiki nokkur vafi á að ég hafi ekki gleymt að nefna eitthvað úr þessu stórkostlega samkomulagi. Þetta eru bara þrjú atriði. Tvö þeirra voru til staðar áður en hið fyrsta bættist við, þessi frestur. Sá frestur er akkúrat á aðlögunartímanum og þangað var ég kominn í síðustu ræðu.
Það sem er átt við með aðlögunartímanum er að þá eru hvorki Ísland, og stóð ekki til, né önnur lönd sem eru þátttakendur í þessu byrjuð að borga þetta til fulls. Þau borga fyrsta árið 25%, næsta árið 50%, þriðja árið 75% og eru loks komin í fullt gjald. Þarna fékk Ísland frest á þessum aðlögunartíma áður en það tæki að borga, en þegar það tekur að borga borgar það upp í topp, 100%, með öllum þeim afleiðingum sem ég og fleiri höfum rakið í málinu, og ráðherrar ríkisstjórnarinnar og embættismenn héldu 100 fundi með fulltrúum Evrópusambandsins til að útskýra að það væri algerlega óásættanlegt fyrir okkur þangað til þau loks ákváðu að samþykkja það.
2. liður segir, með leyfi forseta:
„Ísland fær sömu sérlausn og Malta og Kýpur varðandi 100% endurgreiðslu á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti.“
Um þetta er eitt og annað að segja. Það fyrsta er að það var alltaf gert ráð fyrir að Ísland gæti fengið þessar endurgreiðslur. En hvaða endurgreiðslur eru þetta? Þetta eru endurgreiðslur á muninum á þessu rándýra og fágæta græna eldsneyti og hinu hefðbundna. Munurinn á verði þessara tveggja er endurgreiddur. En markmiðið með þessari áætlun er að verð hefðbundins eldsneytis snarhækki. Það þýðir þá einfaldlega að græna eldsneytið hækkar líka jafn mikið þegar öllu er á botninn hvolft, því að þó að þú fáir endurgreiðslu færðu bara endurgreiðslu niður að því marki að það kosti jafn mikið og hefðbundna eldsneytið sem búið er að hækka. Þarna er ekki gert ráð fyrir því að með þessu fái menn ódýrara eldsneyti. Það er bara gert ráð fyrir að tryggja að það verði ekki dýrara heldur en þetta snarhækkaða hefðbundna eldsneyti.
Svo er það þriðja atriðið. Þar segir:
„Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar (ESB) skv. 5. mgr. 10. gr. ETS-tilskipunarinnar verður árið 2026 lagt mat á flugtengingar Íslands að teknu tilliti til samkeppnisstöðu, hættu á kolefnisleka auk umhverfis- og loftslagsáhrifa og þeirra aðlagana sem koma fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku tilskipunar 2023/958. Þetta mat mun varða veginn í viðræðum um breytingar á ETS-kerfinu.“
Þetta er það sem margir fulltrúar stjórnarliðsins hafa hangið á og við höfum svona aðeins gert grín að þeim fyrir vikið, ef við trúum því raunverulega að þetta skipti einhverju máli sem heitið getur og að Evrópusambandið muni kannski, þegar það er búið að sjá áhrifin á þessum árum, skipta um skoðun. En hvaða ár eru þetta sem á að leggja þarna til grundvallar? Það eru árin þegar Ísland er ekki byrjað að borga gjaldið. Ætla þeir þá, á þeim tíma, að meta hver áhrifin af upptöku gjaldsins verða? (Forseti hringir.) Þetta er náttúrlega alveg fráleitt, frú forseti, og að hæstv. ráðherra telji að fólk trúi þessu.