154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[15:29]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Atvinnuveganefnd fundaði fyrr í dag og var formanni falið fyrir hönd nefndarinnar að greina frá eftirfarandi ósk: Atvinnuveganefnd hefur ákveðið að óska eftir frestun lokaafgreiðslu frumvarps um forgangsraforku fram í janúar. Ákvörðun er tekin eftir að ljóst var að innan Landsvirkjunar er eindreginn vilji til að vinna að farsælli niðurstöðu þar sem tekið verði mið af skyldum Landsvirkjunar í að tryggja raforkuöryggi, hlutdeild fyrirtækisins á raforkumarkaði og framleiðslu og eignarhald.

Með vísan til þessa er þess óskað að málinu verði vísað aftur til atvinnuveganefndar í samræmi við 1. mgr. 23. gr. þingskapa.