154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[15:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga í 3. umræðu. Nefndin fjallaði um málið á milli umræðna og fékk á fund sinn m.a. Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra ásamt fulltrúum frá innviðaráðuneyti, Leigufélaginu Bríeti, HMS, Lagastoð og fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Gerð er tillaga um að auka fjárheimildir málaflokksins stjórnun landbúnaðarmála um 58 milljónir til að mæta kostnaði við arfgerðargreiningu til hraðrar innleiðingar verndandi arfgerða í íslenska sauðfjárstofninum, en áætlað er að innleiðingin standi yfir núna í nokkur ár. Vonir standa til að með innleiðingunni takist að draga úr líkum á að fara þurfi í stórfelldan niðurskurð á sauðfé og riðu með tilheyrandi kostnaði.

Gerð er tillaga um 110 millj. kr. hækkun framlags þar sem uppbygging þrífösunar og jarðstrengjavæðingar var hraðað á yfirstandandi ári. Þetta er til komið og er í kjölfar óveðursins sem varð í desember 2019 en ákveðið var að hraða uppbyggingu til að auka raforkuöryggi á landsbyggðinni. Verkefnið er að stærstum hluta fjármagnað af Rarik en það hefur myndast halli á árunum 2021–2022 auk 110 millj. kr. halla árið 2023 sem nú verður gerður upp. Ekki hefur komið í ljós hvernig tekið verður á hallarekstrinum fyrir árin 2021–2022.

Lögð er til leiðrétting vegna bókhaldslegrar meðferðar loftslagsheimilda. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 14 milljarða kr. aukningu útgjaldaheimilda ásamt samsvarandi aukningu á tekjuhlið. Þar sem um bókhaldslega meðferð er að ræða þar sem ónýttar heimildir eru jafnaðar á móti skuldbindingum á gjaldahlið er ekki þörf á greiðsluheimild og því er lagt til að greiðsluheimild vegna þessa máls falli niður.

Þá er lagt til að auka fjárheimildir í sérhæfða sjúkrahúsþjónustu um 700 milljónir vegna framleiðslutengdrar fjármögnunar á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Samkvæmt samningum um fjármögnun samkvæmt DRG-kerfinu við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri er greitt aukalega fyrir framleiðslu umfram framleiðsluáætlun til að uppfylla allt að 4% en um 30% fyrir framleiðslu eftir það.

Það er gerð tillaga hér um að auka fjárheimildir í lífeyrisskuldbindingum um 360 millj. kr. vegna aukinnar skuldbindingar lífeyrissjóða gagnvart Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins vegna breytinga sem voru gerðar á áföllnum réttindum sjóðfélaga í A-deild og tóku gildi 1. júlí síðastliðinn. Með breytingunum voru réttindi sjóðfélaga í A-deild LSR skert um 4,1% en við það virkjaðist greiðsluskylda ríkissjóðs gagnvart skerðingu á réttindum þeirra sjóðfélaga sem voru 60 ára og eldri við gildistöku samþykkta sjóðsins þegar lagabreytingarnar voru gerðar í árslok 2016 eða höfðu þá þegar hafið töku lífeyris.

Síðan í lokin er hér gerð breyting á 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2023 þar sem er bætt við nýrri heimild til að auka hlutafé í Leigufélaginu Bríeti ehf. til að styðja við tímabundin kaup á allt að 80 íbúðum sem leigja skal til Grindvíkinga með skilyrði um endurgreiðslu hlutafjárins með lækkun hlutafjár innan þriggja ára frá því að greiðslan var innt af hendi. Úrræðið er sett fram í samhengi við lög um sérstakan húsnæðisstuðning til Grindvíkinga sem samþykkt voru á Alþingi 5. desember síðastliðinn. Samkvæmt þessum lögum munu þeir sem þurftu að rýma heimili sín vegna jarðhræringa á Reykjanesi fá tiltekinn húsnæðisstuðning til að lækka húsnæðiskostnað þeirra sem þurfa að leigja íbúðarhúsnæði utan Grindavíkurbæjar. Til að tryggja að til staðar séu nægar fasteignir til leigu fyrir íbúa Grindavíkur verður geta Leigufélagsins Bríetar ehf. aukin tímabundið til að standa undir slíkum kaupum. Ríkissjóður á 88% hlut í leigufélaginu en aðrir hlutir þess eru í eigu þriggja sveitarfélaga. Meiri hlutinn leggur áherslu á að sérstaklega verði gætt að því að sölukostnaður íbúanna haldist í lágmarki þegar að sölu þeirra kemur. Mun fjárlaganefnd fylgjast með framgangi úrræðisins með því að óska reglulega eftir skýrslum og greinargerðum frá innviðaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneytið til að leggja mat á árangur verkefnisins. Meiri hlutinn mun einnig óska eftir því við innviðaráðherra að hann skili Alþingi skýrslu um framkvæmdina fyrir 1. apríl 2024.

Til viðbótar þessari heimild um eiginfjárframlag er gert ráð fyrir að í fjárlögum fyrir árið 2024 verði sérstök fjárheimild til þess að bæta niðurgreiðslu vaxta við lánsfjármögnun hjá Bríeti, allt að 50 millj. kr. miðað við núverandi vaxtastig, sem verði endurskoðað árlega ef vextir á markaði breytast. Þetta er talið nauðsynlegt til þess að gera Bríeti kleift að bjóða Grindvíkingum leigu á viðunandi kjörum.

Loks eru hér gerðar tillögur sem ekki hafa áhrif á heildarútgjöld og afkomu ríkissjóðs en er um að ræða millifærslur og breytta hagræna skiptingu fjárheimilda.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um fjáraukann fyrir árið 2023 og þakka fjárlaganefnd bara kærlega fyrir samstarfið og samvinnuna í þessu verkefni.