154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[15:38]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Hér sjáum við hvernig við erum að útdeila peningunum okkar, peningunum úr ríkissjóði. Flokkur fólksins hefur ítrekað komið með breytingartillögur, ýmist við fjárauka eða jafnvel frumvarp um eingreiðslu til öryrkja. Við fáum jólabónus nú fyrir jólin þar sem við höfum verið að fara fram á það að slíkt hið sama sé látið ná yfir eldra fólk sem býr í raun við sárafátækt. Það er skemmst frá því að segja að þetta hefur ekki hlotið náð fyrir augum þessarar auðvaldsríkisstjórnar sem í raun og veru virðist vilja lækka t.d. álögur, þetta lítilræði sem við hefðum viljað setja á laxeldið, og sem vill ekki einu sinni taka krónu í viðbót af græðgismaskínum bankanna inn í okkar sameiginlegu sjóði; lítur ekki við því að hækka álögur á stórútgerðina sem kaupir sér fjallakofavillur út um allar koppagrundir, þá síðustu á tæpa 300 millj. kr. í háfjöllum Noregs. Það er huggulegt að geta valsað um íslensku sameiginlegu auðlindina okkar og stráð milljörðum í kringum sig og lifað eins og kóngur án þess raunverulega að leggja sanngjarna rentu inn í okkar sameiginlegu sjóði.

En það er samt enn þá sárara þegar maður hugsar til þess að þegar beðið er um fjármuni sem eingöngu eru til þess ætlaðir að hjálpa fólki í sárri neyð, jafnvel að bjarga mannslífum, þá skuli það vera slegið út af borðinu. Við fórum t.d. fram á 399,7 millj. kr. í aukin framlög til sjúkrahússins Vogs til þess að reyna að draga úr biðlistum og reyna að koma í veg fyrir það eins og kostur er að fólkið okkar, fárveikir sjúklingar, sé að deyja á biðlistum eftir hjálp. Hvers lags samfélag er það, frú forseti, sem með vitund og vilja, eftir daglegar fregnir um skelfingar, sorgir og dauða okkar minnstu bræðra og systra, skuli heykjast við að stíga fram á völlinn og rétta fram hjálparhönd og reyna að gera það sem í valdi þess stendur til að tryggja þeim þó ekki væri nema læknishjálp og nauðsynlega aðstoð á neyðarstundu? Er það nema von að maður í rauninni átti sig lítið á því hver tilgangur manns er hér á hinu háa Alþingi þegar þeir sem stýra og stjórna láta sér standa nákvæmlega á sama um þá sem búa hér við bágustu kjörin og þá sem eru að glíma við dauðans alvörusjúkdóm, og sýna það í rauninni í verki? Það er ekkert mál að setja milljarð í bílaleigur sem skila methagnaði. Nú er ekkert mál að koma enn þá frekar til móts við bílaleigur. Við ætlum líka að bjarga loftslaginu á jörðinni. Við ætlum sennilega að skella okkur til Kína og reyna að loka einhverjum af þessum tveimur kolaverum sem þeir opna í hverri einustu viku. Við ætlum sjálfsagt að redda öllu því sem gengur á í Bangladess, Indlandi, Rússlandi, Bandaríkjunum og allt það. Við, Ísland, bestasta, stórasta land í heimi, getum sett milljarða á milljarða ofan í málaflokka sem í raun og veru eru ekkert nema til þess að vera sýndarmennskan ein og sýna það á almennum vettvangi, á alþjóðavettvangi hvað við séum í rauninni alveg rosalega frábær. Ég er gjörsamlega búin að fá nóg af allri þessari sýndarmennsku og öllu þessu mikilmennskubrjálæði sem maður hefur verið umvafinn allt í kringum sig á hinu háa Alþingi Íslendinga.

Og svo kemur nú að hinni breytingartillögu Flokks fólksins, vegna þess að gleðifréttirnar eru þær að af einhverri náðsemi og miskunn á að setja 20 milljónir í Krýsuvík og 20 milljónir eiga að koma til Hlaðgerðarkots, eftirmeðferðarstofnana fyrir fólk sem er í meðferð. Að vísu óskuðum við eftir 50 milljónum því að óskað var eftir þeim á Krýsuvík til að geta haldið úti því þjónustustigi sem þeir stefna að, nú þegar þeir opna nýja deild fyrir konur í meðferðarkjarnanum sínum. En litlu skrefin eru þó betri en engin skref og þetta eru kannski hugsanlega tvö, þrjú stöðugildi yfir árið hjá t.d. Krýsuvík og það er þakkarvert.

En ég get engan veginn skilið það hvers vegna þau vilja ekki taka niður biðlistann á Vogi. Ég get engan veginn skilið það hvernig þau geta horfst í augu við sjálf sig einn einasta morgun, vitandi það að fyrir nokkrum dögum fraus ungur maður niðri á Klambratúni. Hann fraus í hel. Hann átti hvergi höfði sínu að halla. Honum var vísað burt úr neyðarskýli af því að það var ekki pláss fyrir hann. Þessir einstaklingar leggjast á bekk á kvöldin og hugsa með sér: Skyldi ég vakna á morgun eða vakna ég dáinn á morgun? Það sorglega er að flestir leggjast á bekkinn á kvöldin og vona að þeir vakni ekki á morgun því að það er alveg ljóst að héðan úr þessu háa Alþingi, héðan frá þessari auðvaldsgræðgisríkisstjórn er enga miskunn að fá og enga hjálp heldur.

Svo þegar við lítum á fátækasta eldra fólkið okkar, fólkið sem fór úr því að vera öryrkjar yfir í það að vera eldri borgarar, fólkið sem er að fá undir 300.000 kr. á mánuði, fólkið sem myndi ekki veita af því að geta glaðst yfir því að fá þessa 66.000 kr. eingreiðslu í jólabónus eins og við erum að veita öryrkjum, þegar kemur að þessu fólki þá er öllum nákvæmlega sama í þessari ríkisstjórn. Ég er búin að mæla fyrir þessari breytingartillögu fjórum sinnum. Ég er búin að gefa þessari ríkisstjórn og þessum stjórnarflokkum fjögur tækifæri til að skipta um skoðun og sýna þó ekki væri nema snefil af mannúð, og nú ætla ég að leggja þessa breytingartillögu fyrir eina ferðina enn. Eina ferðina enn óska ég eftir hækkun á framlögum úr fjárauka á málefnasviði 28, í 2. tölul. er lagt til að veitt verði framlag til að greiða megi 66.381 kr. eingreiðslu í desember til ellilífeyrisþega sem fá greiddan óskertan ellilífeyri almannatrygginga.

Ég get ekki skilið það, vegna þess að við erum búin að koma þessari tölu niður í ríflega 2.000 einstaklinga og upphæðin sem um er að ræða er um 140 millj. kr., um 140 millj. kr. myndu gefa langfátækasta eldra fólkinu í landinu ríflega 66.000 kr. jólabónus og gjörbreyta í rauninni allri líðan þess fyrir hátíð ljóss og friðar.

Síðan er hin ítrekaða breytingartillaga Flokks fólksins um að hækka framlög til styrktar hjálparstofnunum sem úthluta matargjöfum fyrir jólin. Hvernig er hægt að vera í ríkisstjórn — fyrir kosningar kepptist hver formaðurinn á fætur öðrum við að básúna það og segja okkur öllum: Við erum hér fyrir almannahagsmuni, við erum flokkurinn sem ætlar að hjálpa öllum ef þið bara kjósið mig. Komið mér til valda og sjáið hvað ég er frábær. Við erum að hugsa um almannaheill. Í rauninni kemur það manni alltaf á óvart, kjörtímabil eftir kjörtímabil,

hvernig ráðast á garðana einstaklingar sem ætti fyrir löngu að vera orðið ljóst að láta sér nákvæmlega á sama standa um almannahag, láta sér alveg nákvæmlega á sama standa um sína minnstu bræður og systur, því ef þeir gerðu það ekki þá væru þeir búnir að leiðrétta og laga hlutina og koma þeim til betri vegar. Þessari ríkisstjórn, eins og öllum öðrum ríkisstjórnum, sem eru nánast einráðar í öllu því sem þær taka sér fyrir hendur, er í lófa lagið að forgangsraða fjármunum okkar fyrir fólkið fyrst. Þeim er í lófa lagið að sýna það í verki að þær séu fyrir almenning, almannahag og okkur öll en ekki bara fyrir fáa útvalda gæðinga þar sem hinir mega láta sig hafa það að hirða mylsnuna sem af allsnægtaborðum þeirra fellur. Ég hef sagt það einu sinni áður, kannski tvisvar og kannski þrisvar, en ég segi það aldrei nógu oft: Ég fyrirlít þessi vinnubrögð. Ég fyrirlít svona stjórnvöld. Ég fyrirlít þessi stjórnvöld sem kunna ekki að skammast sín.