almannatryggingar.
Hæstv. forseti. Við erum hér með mál sem er eitt af þeim málum sem mikilvægt er að við klárum núna fyrir jólin. Það kemur upphaflega til með þeim hætti að ráðist var í eingreiðslu til örorkulífeyrisþega fyrir áramótin fyrir sennilega þremur eða fjórum árum síðan þar sem enn þá var verið að vinna að heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins. Þar sem sú heildarendurskoðun stendur enn þá yfir þá höfum við haldið áfram að vera með þessa eingreiðslu enda er hún mikilvæg þangað til við erum búin að ljúka við heildarendurskoðunina. Við vitum að þar eru áherslur með þeim hætti að við horfum til þess að bæta sérstaklega kjör þeirra öryrkja sem minnst hafa í kerfinu í dag. Þar erum við að horfa m.a. til þess að þau sem eru á strípuðum bótum fái hækkun. En við erum líka að horfa til þeirra sem hafa litlar tekjur umfram grunnbæturnar, að þær tekjur verði skertar minna heldur en þegar komið er upp í ákveðið miklar tekjur. Þessari vinnu hefur undið ágætlega fram í ráðuneytinu og ég held að það sé rétt að gera aðeins grein fyrir því hérna í tengslum við umræðu um þetta ágæta mál, sem ég legg aftur áherslu á að er mikilvægt að við horfum til að ljúka fyrir áramótin. Það er nauðsynlegt að þetta sé eitt af því sem við horfum til á meðan heildarendurskoðuninni er ekki lokið. En ég held að með því að sameinast um þetta ágæta mál þá sýnum við líka þann hug í verki að við erum staðráðin í því, þingheimur, og ég treysti á það að hv. alþingismenn komi með í þá vegferð, að klára á þessum þingvetri vonandi heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Ég vildi leggja þessi fáu orð í belg undir þessari umræðu.