almannatryggingar.
Frú forseti. Hér erum við einmitt að tala um gleðiefnið, eingreiðslu, jólabónus til handa öryrkjum. Eins og hæstv. ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson nefndi hér áður fer einmitt fram endurskoðun á almannatryggingakerfinu. Þess vegna er verið að segja að ástæðan fyrir því að þessi jólabónus er greiddur út núna sé að öryrkjar eru að bíða eftir breyttu og betra kerfi sem væntanlega mun þá styðja þeirra stöðu, allra nema þeirra sem verða settir í starfsgetumat án þess að hafa nokkuð starf að hverfa að af því að hér er náttúrlega eins og svo oft áður byrjað á því að reisa loftnetið áður en húsið er komið á grunninn. En það er önnur saga.
Hins vegar kemur mér mjög á óvart að það skuli vera algerlega sneitt fram hjá því að sá hópur fólks sem Flokkur fólksins hefur ítrekað verið að berjast fyrir að fái einnig þessa greiðslu um jólin, ríflega 66.000 kr. jólabónus, er með svipaða krónutölu og öryrkjarnir sem eru að fá jólabónus nema bara að margir þeirra hafa jafnvel ívið og mun lægri afkomu. Það eru þeir sem hafa farið frá því að vera t.d. öryrkjar og orðið ellilífeyrisþegar og við það hafa þeir misst tæpar 30.000 kr. á mánuði ef þeir hafa verið með fullar aldurstengdar örorkuuppbætur. Þannig að ég get ekki skilið rökin sem í rauninni væri hægt að koma og bera á borð hér þegar verið að mismuna sárafátæku fólki. Þetta eru tveir hópar af fátækasta fólkinu í landinu. Það er verið að mismuna þeim svo hrapallega að annar hópurinn fær 66.000 kr. á þeim forsendum að hann sé að bíða betri löggjafar sem á að taka betur utan um hans mál á meðan hinn hópurinn mun aldrei fá þá löggjöf heldur er í rauninni í einhverju gati í kerfinu, sem þessum stjórnvöldum og þessari ríkisstjórn er greinilega nákvæmlega sama um. Þau geta bara haldið áfram að vera í þessu boxi og áfram má sparka í þau liggjandi og það á ekki að rétta þeim þessa greiðslu, jólabónus fyrir jólin.
Eins og ég sagði áðan þá næ ég ekki með nokkru lifandi móti utan um það hvernig hægt er að heykjast við að greiða 142 millj. kr. til ríflega 2.000 eldri borgara í sárri neyð á meðan allur almenningur og við sem búum hér við það að starfa á þessu háa Alþingi verðum vitni að því hvernig farið er með almannafé og því sólundað á báða bóga. Hér eru haldin snobbpartí í Hörpunni eins og í vor sem kostuðu íslenskan almenning vel yfir 2 milljarða kr., þar af voru 1,5 milljarðar teknir beint úr varasjóðunum okkar fyrir partí sem stóð ekki í tvo daga. Hér fluttum við inn lúxusbifreiðar, 70 Audi Q8 lúxusbifreiðar, hér fluttum við inn fín og flott jakkaföt, hjálma, skotvopn af öllum stærðum og gerðum, skotvopn fyrir tæpar 170 millj. kr., reyndar skotvopn sem hafa aldrei farið úr landinu. Hér keyptum við erlenda öryggisgæslu sem lá á öllum húsþökum í miðbænum með sína hríðskotariffla og engu líkara en að þeir væru að verjast loftárás og við ættum von á einhverri stórkostlegri innrás.
En hvað skyldi nú hafa orðið úr öllu þessu? Hversu margir skyldu hafa fengið mat á diskinn og hversu mikla athygli skyldi þetta partí hafa fengið í alþjóðasamfélaginu? Hvað skyldu nú margir blaðamenn hafa skipt sér af því? Þetta var ekki einu sinni eins og ef hálfur Fischer hefði komið hér í Höfða að tefla, hvað þá athyglin sem þeir fengu þegar Spasskí var með honum og þeir voru báðir hérna í heilu lagi að tefla í Höfða á sínum tíma. Og þetta var ekki eins og athyglin sem annar fóturinn á Ronald Reagan hefði fengið á alþjóðavísu, hvað þá þegar það voru bæði Ronald Reagan og Gorbatsjov. En að tala um 140 millj. kr. fyrir sárafátæka eldri borgara, sárafátækt eldra fólk og fá einn á lúðurinn í hvert einasta skipti og að þessu sé sópað út af borðinu, það er annaðhvort hrein og klár mannvonska eða algjör vanþekking og forheimska í málinu eins og það liggur fyrir vegna þess að þessi hópur sem við erum að berjast fyrir hér og erum búin að gefa þessari ríkisstjórn núna fimm tækifæri til að samþykkja — ég mælti fyrir þessu í breytingartillögu áðan við fjáraukann og nú mæli ég fyrir þessari breytingartillögu um að bæta þessari eingreiðslu við fyrir eldra fólk. En til að það megi verða verðum við líka samþykkja það í fjáraukanum svo við fáum þá fjármagn til þess að geta greitt það út ef þessi tillaga mín verður samþykkt, sem ég hef nú engar einustu væntingar um því að ég get ekki séð að það sé einhver möguleiki á því að vitkast á klukkutíma þegar það hefur ekki verið gert á þeim árum sem ég hef barist fyrir því að reyna að koma þessu í gegn fyrir eldra fólk. En breytingartillaga hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir einstaklingar sem eiga rétt á greiðslu ellilífeyris skv. 17. gr. á árinu 2023 og hafa óskertan ellilífeyri almannatrygginga skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 66.350 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2023, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.“
Í greinargerð segir:
„Lagt er til að tryggja þeim ellilífeyrisþegum sem fá á árinu 2023 óskertan ellilífeyri almannatrygginga samskonar eingreiðslu og mælt er fyrir um í 1. gr. frumvarpsins til öryrkja og endurhæfingarlífeyrisþega. Um er að ræða tekjulægsta hóp ellilífeyrisþega sem hafa svo lágar lífeyristekjur að þær leiða ekki til skerðingar á ellilífeyri þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins nær tillagan til 2.135 manns, þar af 1.007 manns sem fá nú ellilífeyri í stað örorkulífeyris.“
Ég ætla að endurtaka aðeins eina setningu hérna: „Um er að ræða tekjulægsta hóp ellilífeyrisþega sem hafa svo lágar lífeyristekjur að þær leiða ekki til skerðingar á ellilífeyri þeirra.“
Hversu erfitt er það fyrir stjórnvöld að átta sig á því að einstaklingur sem er með slíka lága greiðslu að hann er ekki einu sinni skertur út á það — er eitthvað erfitt fyrir nokkurn að sjá að þetta er einstaklingur sem er í sárri neyð, að þetta er einstaklingur sem er í fátækt? Nei, það er sko ekki nokkur einasti vandi fyrir nokkurn einasta einstakling að akkúrat átta sig á því. Við erum ekki að óska eftir 66.000 kr. jólabónus fyrir ríflega 60.000 eldri borgara. Við erum að taka út fyrir sviga ríflega 2.000 einstaklinga sem eru í sárri neyð og þurfa á þessum jólabónus að halda.