fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2024: Breyting á sundurliðun 2, málefnasvið 21, háskólastig. Breytingartillagan er við málefnasvið 21.10, háskólar og rannsóknastarfsemi.
Gerð er tillaga um 30 millj. kr. tímabundið framlag til Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar. Á vegum rannsóknarsetursins fer fram tilraunaverkefnið Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum, sem snýst um að þróa bættar kennsluaðferðir í grunnskólum, með áherslu á að bæta lestrarkennslu og bæta vellíðan nemenda í gegnum tilgangsdrifið nám. Hér er um mjög mikilvægt rannsóknarverkefni að ræða, ekki síst þegar við fáum vægast sagt hrikalegar niðurstöður úr PISA-könnunum hvað varðar grunnfærni í lestri og grunnfærni í stærðfræði og náttúrufræði.
Kveikjum neistann er þróunarverkefni og menntarannsókn sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum fór af stað með haustið 2021. Þar er lögð áhersla á beina kennslu í sambandi við grunnfærni sem er gríðarlega mikilvæg. Þetta snýr að grunnfærni í lestri, stærðfræði og náttúruvísindum. Verkefnið byggir á niðurstöðum fremstu vísindamanna heims á sviði menntunar og heilbrigðis og árangur verkefnisins hefur verið gríðarlega góður. Má benda á nýjustu niðurstöður — þeir hafa þróað lestrarprófið Læs og gert kannanir á þessu — en eftir fyrsta ár brjóta 100% nemenda lestrarkóðann og eftir tvö ár eru 83% læs. Samanburðarhópurinn er 53% uppi á fastalandinu.
Eins og áður segir snúa áherslur verkefnisins að læsi, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu og hugarfari nemenda og tengjast þróun á kennsluháttum, kennsluefni og starfsþróun og ráðgjöf til kennara og skólastjórnenda. Markmið verkefnisins eru m.a. að 80% nemenda séu fulllæs við lok 2. bekkjar en eins og áður sagði hefur árangurinn verið 100% þar.
Unnið verði með réttar áskoranir miðað við færni og lestraráhugi skapaður með lestri góðra bóka.
Áhersla er lögð á markvissa kennslu lesskilnings svo að nemendur geti lesið sér til gagns.
Að nemendur verði framúrskarandi í skapandi skrifum og framsögn.
Að nemendur kunni samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu við 12 ára aldur. Þeir öðlist síðan kunnáttu og færni í öðrum þáttum stærðfræðinnar í 8.–10. bekk.
Að nemendur öðlist ástríðu fyrir náttúrufræði og umhverfisfræði.
Að nemendur bæti hreyfifærni og hreysti.
Hér er byggt á helstu kenningum fræðimanna í heiminum og þetta eru ekki nýjar kenningar. Það er hér markþjálfun, eftirfylgni og áskoranir miðað við færni sem byggir því á stöðugu stöðumati.
Á þeim tímum sem eru núna, miðað við niðurstöður síðustu PISA-könnunar, er gríðarlega mikilvægt að við á Alþingi Íslendinga veitum fjárstuðning til verkefnisins. Ég get bent á að í fjárlögum á síðasta ári var 20 millj. kr. framlag til verkefnisins og það var reyndar beiðni til næstu þriggja ára. Það hefur ekki komið fram og þess vegna er þessi breytingartillaga lögð fram. Ég vænti þess að tekið verði undir breytingartillöguna með sama hætti og var gert í fyrra þegar Alþingi veitti verkefninu 20 millj. kr. styrk. Það má segja að þetta sé ljósið í myrkrinu í ástandinu í dag varðandi læsi. Þetta er til 10 ára eins og ég sagði og þetta er ekki kostnaðarsamt verkefni ef litið er á stóru myndina og framlög til menntamála.