viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegur forseti. Fyrst er ekki annað hægt en að gagnrýna þann knappa tíma sem þinginu var skammtaður til að afgreiða þetta mál og ræða. Eins og þingheimur veit þá skárum við í þingflokki Miðflokksins mjög við nögl umræður okkar um það mál miðað við tilefni þess og það er svo margt sem órætt er. En það sem liggur fyrir í texta frumvarpsins og ábendingar gesta þar að lútandi er hversu margt er óljóst og óútfært og beinlínis vantar inn í regluverkið. Við innleiðum hér 14 gerðir sem eru undir í þessum pakka þar sem þetta var allt sameinað. Ég get ekki annað en vísað allri ábyrgð á þessu bixi á hendur ríkisstjórnarinnar og þingflokkur Miðflokksins mun greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi.