154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[17:27]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Samfylkingin styður heils hugar þetta mál og áréttar stuðning sinn við úrræði fyrir Grindvíkinga og að tryggja þeim þak yfir höfuðið. Við áteljum hins vegar harðlega þau vinnubrögð að kynna málið fyrir fjárlaganefnd og þingi fyrst í gærmorgun og hvernig að málinu hefur verið unnið fram á þennan dag. Þá geri ég ráð fyrir því að hv. fjárlaganefnd fylgi því eftir og fari yfir öll gögn málsins á nýju ári. En Samfylkingin segir já með þessum fyrirvara.