154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér er breytingartillaga sem snýr að því að gerð verði tillaga um 30 millj. kr. tímabundið framlag til Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar. Á vegum rannsóknarsetursins fer fram tilraunaverkefnið Kveikjum neistann, sem snýst um að þróa bættar kennsluaðferðir í grunnskólum, með áherslu á að bæta lestrarkennslu og bæta vellíðan nemenda í gegnum tilgangsdrifið nám. Á síðasta ári veitti Alþingi þessu verkefni 20 millj. kr. framlag og ákveðin mistök voru gerð þegar það gleymdist að senda inn erindi til fjárlaganefndar fyrir þetta. Í ljósi myrkursins sem PISA er í þá er Kveikjum neistann örlítið ljós sem gæti orðið stærra ef vilji er fyrir hendi.