154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:49]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það er heiður fyrir Alþingi að veita heiðurslaun listamanna. Það á alltaf að vera heiður og hefur verið það síðan 1891 þegar Matthías Jochumsson og Torfhildur Hólm fengu fyrst styrk frá Alþingi. Það eru fjögur nöfn sem við verðum að muna eftir í óperuheiminum: Carreras, Domingo, Pavarotti og Jóhannsson.