154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég vildi rétt koma upp í lokin til að árétta það sem hefur komið fram í atkvæðaskýringum þingmanna Viðreisnar. Þetta er frumvarp sem við getum ekki stutt. Það er hægt að bera virðingu fyrir því, þó að maður sé ekki sammála í pólitík, að verið er að fara í umtalsvert og sársaukafullt aðhald til að vinna bug á verðbólgu. Það er hægt að bera virðingu fyrir pólitík, þó að maður sé ósammála henni, þar sem farið er í mikla útgjaldaaukningu til að mæta þörfum fólks sem sannarlega þarf á aðstoð að halda. Það er nauðsynlegt að gera hvort tveggja með stífri forgangsröðun en það er ekki hægt að styðja frumvarp sem gerir ekkert af þessu, sem er hlutlaust á þeim tíma sem við búum við núna. Þingflokkur Viðreisnar er á rauða takkanum við afgreiðslu þessa frumvarps og mig langar að taka fram að það var ekki einfalt mál að vera á gula takkanum í ýmsu sem skiptir máli og er jákvætt og gott. En eins og við fórum yfir í upphafi þá er prinsippið okkar að þetta eru ekki okkar fjárlög. Við hefðum ekki raðað gríðarlegum tekjum ríkisins á þennan hátt. Við hefðum hagað þessu frumvarpi öðruvísi. Þetta er ekki okkar frumvarp.