veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar frá allsherjar- og menntamálanefnd. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 127 umsóknir um ríkisborgararétt á haustþingi en skv. 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, getur Alþingi veitt ríkisborgararétt með lögum. Undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar hefur lagt á sig mikla og erfiða vinnu við að yfirfara allar þessar umsóknir og komist að niðurstöðu. Mig langar að þakka þeim sem sæti hafa átt í undirnefndinni fyrir þeirra miklu vinnu. Allsherjar- og menntamálanefnd gerir tillögu þeirra að sinni og leggjum við því til að 18 aðilum, auk tveggja barna, verði veittur ríkisborgararéttur. Nöfn þessara aðila liggja fyrir á umræddu þingskjali og mig langar að nota tækifærið og óska þeim nýju íslensku ríkisborgurum sem hér munu öðlast ríkisborgararétt innilega til hamingju og mikils velfarnaðar í íslensku samfélagi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)