jólakveðjur.
Ég vil fyrir hönd okkar þingmanna þakka forseta, varaforsetum og starfsmönnum kærlega fyrir samstarfið. Það hefur verið afskaplega gott. Að vísu hefur starfsfólk eldhússins afrekað það að ekki er mögulegt fyrir mörg okkar að halda líkamsvextinum í gullinsniði og forseti hefur auðvitað þurft nokkrum sinnum á síðustu dögum að gefa nokkrum okkar kartöflu í skóinn. En hvort tveggja er eitthvað sem við getum örugglega bætt fyrir á næsta vori.
Kæru vinir. Við höldum heim til ástvina eftir hraustlega törn síðustu daga og um leið og við skulum njóta þess skulum við hugsa til þeirra sem eigum sárara að binda, hvort heldur sem er vegna styrjalda sem geisa úti um allan heim eða annarra hluta. Við hugsum einnig til Grindvíkinga og annarra sem ekki geta dvalið á heimilum sínum um jólin.
Að lokum vil ég ítreka þakkir til forseta og starfsfólks og óska þeim og fjölskyldum þeirra notalegra jóla og gleðilegs árs. Ég bið þingmenn að taka undir og rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]