þingfrestun.
Herra forseti. Ég mun nú lesa upp forsetabréf.
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 154. löggjafarþings, frá 15. desember 2023 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 22. janúar 2024.
Gjört á Bessastöðum, 15. desember 2023.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis sem hér var veitt áðan lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 154. löggjafarþings, er frestað.
Ég vil þakka hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir gott samstarf á þessu haustþingi nú sem endranær og óska ykkur öllum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.