154. löggjafarþing — 56. fundur, 22. jan. 2024.
Framhaldsfundir Alþingis.
Gefið hefur verið út svohljóðandi bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 22. janúar 2024 kl. 15:00.
Gjört í Reykjavík, 18. janúar 2024.
Guðni Th. Jóhannesson.
_______________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég vil nota tækifærið hér að loknum lestri þessa bréfs og bjóða hæstv. forseta og hv. þingmenn velkomna til þingfundastarfa á nýju ári.