Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 263, um íslenskukennslu fyrir útlendinga, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 322, um atvinnuþátttöku eldra fólks, frá Ingibjörgu Isaksen, á þskj. 324, um búsetuúrræði fatlaðs fólks, frá Bryndísi Haraldsdóttur, á þskj. 617, um endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni, frá Andrési Inga Jónssyni, og á þskj. 714, um starfsfólk starfsmannaleiga, frá Valgerði Árnadóttur. Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 645, um skráningu brjóstapúða, frá Andrési Inga Jónssyni, og á þskj. 646, um breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, frá Bergþóri Ólasyni. Þá hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 397, um verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins í Afganistan, frá Birgi Þórarinssyni. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 722, um undanþágur frá fjarskiptaleynd, frá Andrési Inga Jónssyni. Að lokum hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 834, um endurnýtingu örmerkja, frá Njáli Trausta Friðbertssyni.