154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:40]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Ég vil byrja á því að lýsa aftur yfir samstöðu og samkennd með Grindvíkingum sem ekki aðeins horfa fram á að missa heimili sín heldur horfa fram á að missa jafnvel samfélag sitt og þau dýrmætu félagslegu tengsl sem fylgja því að búa í og hlúa að samfélagi til lengri tíma. Nú er staðan sú að Grindvíkingar eru dreifðir yfir rúmlega 30 sveitarfélög og grindvísk börn eru dreifð yfir rúmlega 60 skóla. Unglingar eru að flosna upp úr námi og hætta í íþróttum. Samkennd, tengsl og traust eru límið sem heldur samfélaginu saman. Mannveran er félagsvera. Við erum hópdýr, við erum tegund sem þróaðist til að vinna saman og við erum sterkust þegar við erum sameinuð. Þannig líður okkur vel. Það er því gríðarlega mikilvægt að gera allt sem í okkar valdi stendur til að varðveita þessi tengsl, til að taka utan um Grindvíkinga, grindvísk börn og aðra sérstaklega viðkvæma hópa sem við berum sérstaka skyldu til þess að passa vel upp á.

Ég vil í þessu sambandi taka fram strax í upphafi að við munum leggja sérstaka áherslu á að tryggja aðgengi fatlaðs fólks að viðunandi húsnæði sem því miður hefur vantað upp á í viðbrögðum hingað til. Þá munum við enn fremur gæta sérstaklega að öðrum viðkvæmum hópum eins og eldra fólki, börnum og fólki af erlendum uppruna. Ég veit að við getum gert betur og að allir hér inni vilja gera betur í þeim efnum. Í þessu samhengi er mikilvægt að vara við þeim aðilum sem nú ryðjast fram á völlinn og reyna að stilla Grindvíkingum upp á móti öðrum hópum í samfélaginu okkar, fólki sem vill ala á sundrung frekar en samstöðu, hatri frekar en samkennd og samvinnu.

Forseti. Það er mikils virði að forystufólk allra flokka hefur sameinast um að vinna saman að vandaðri útfærslu á því hvernig skera eigi Grindvíkinga úr snörunni, eins og Bryndís Gunnlaugsdóttur komst að orði á íbúafundi Grindvíkinga um daginn. Það er mikilvægt að það er full samstaða um að Grindvíkingar öðlist fjárhagslegt frelsi til að koma undir sig fótunum á nýjum stað en það er líka mjög mikilvægt að það sé ekki aðeins samstaða hér á þessum stað heldur að Grindvíkingar allir fái að hafa eitthvað um útfærsluna og framkvæmdina að segja. Það er líka mikilvægt að muna að það er ekki til ein lausn fyrir alla og því verðum við að sýna sveigjanleika og koma til móts við þarfir hvers og eins. Sjálf hefði ég viljað eiga þetta samtal, þetta samráð og þetta samstarf, sem nú er farið af stað við ríkisstjórnina, fyrr. Ég fagna því engu að síður að nú liggi fyrir að ríkið taki á sig óvissuna, taki á sig tjónið. Nú þurfum við bara að ákveða útfærsluna á því sem allra fyrst. Sjálfri þykir mér vænt um þjóðfundi og þjóðfundarfyrirkomulag og velti því upp hvort ekki mætti skipuleggja slíkan fund fyrir Grindvíkinga. Þannig gætum við öll unnið saman að lausn til framtíðar.