154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:43]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er erfitt búið að vera að fylgjast með þeim atburðum sem hafa verið í gangi í og við Grindavík og eru því miður ekki um garð gengnir enn. Við vonuðumst auðvitað öll eftir því að þar væri um tímabundnar hamfarir að ræða. Við komum strax á úrræðum til skemmri tíma til þess að koma fólki í skjól, varðandi húsnæði, greiðslu launa og fleiri þætti, en síðan hefur náttúran því miður tekið svolítið völdin og atburðurinn enn í gangi. Á meðan innstreymi er á kviku þá vitum við ekki hvað gerist næst, hvenær það hættir eða með hvaða hætti atburðurinn þróast. Það er því talsvert mikil óvissa og mikilvægt að losa Grindvíkinga, þá sem hafa bundið allt sitt eigið fé og sparnað í húsnæði, úr fjötrum átthaga og skulda. Það er mikilvægt að tryggja að Grindvíkingar geti leyst fjármuni sína úr íbúðarhúsnæði í bænum svo þeir geti byrjað að undirbúa nýja framtíð, hvort sem er um skamma framtíð eða lengri. Það er líka mikilvægt að við höldum þeim möguleika opnum að hægt verði að snúa aftur til Grindavíkur ef guð og náttúran leyfir.

Samhliða þessu þarf að tryggja að til staðar sé framboð á íbúðarhúsnæði fyrir Grindvíkinga og þar þurfum við einfaldlega að gera betur en gert hefur verið til þessa. Þess vegna erum við að bæta í. Þetta voru 80 íbúðir sem við fólum leigufélaginu Bríeti að kaupa fyrir jól, 70 var bætt við hér í upphafi janúar og ríkisstjórnin hefur lagt til að þar verði bætt við 50 til viðbótar, þ.e. um 200 íbúðir, og síðan hefur leigufélagið Bjarg heimildir til að kaupa 60 íbúðir til að koma í leigu fyrir tekjulægri Grindvíkinga.

En það þarf einnig að tryggja framboð á húsnæði fyrir þá Grindvíkinga sem vilja kaupa sér húsnæði og til þess að tryggja það þarf ríkið að standa að uppbyggingu nýs húsnæðis og vinna að því að tryggja Grindvíkingum forgang að því. Ein leið er að losa um þá átthaga- og skuldafjötra sem þar eru. Aðrar felast þá í því að auka framboð og það er hægt að gera með ýmsum hætti. Það má skoða staðbundnar húseiningar sem er þá skammtímalausn til einhverra ára sem væri hægt að koma upp fyrir einstaklinga og minni fjölskyldur. Það má skoða og nú er til skoðunar innflutningur á húseiningum í stærri stíl eða framleiðsla hér innan lands eins og það getur orðið til þess að auka verulega framboð á íbúðarhúsnæði á markaði. Það má líka skoða takmarkanir eða að þrengja þar skilyrði sem eru á skammtímaleigu á markaði í dag til að tryggja að framboð aukist. Það má skoða allar aðrar leiðir og við þurfum einfaldlega að fara í það að skoða allar aðrar leiðir til þess að auka framboð á húsnæði.

Hin tvö stóru óvissumálin sem þarf að eyða er óvissan um afkomu og verðmætabjörgun. Til að tryggja örugga afkomu þeirra Grindvíkinga sem geta ekki vegna aðstæðna sótt vinnu munum við framlengja launagreiðslur til þeirra. Við höfum einnig endurskoðað sértækan húsnæðisstuðning vegna leigugreiðslna. Hann verður vonandi samþykktur hér og framlengdur, kemur væntanlega inn á þing á morgun og mun þannig taka betur mið af fjölda heimilisfólks og eins þeim kostnaði sem fellur til vegna leiguhúsnæðis og þeim aðstæðum sem Grindvíkingar eru í. Þá leggjum við áherslu á að Grindvíkingar fái tækifæri og aðstoð við að bjarga verðmætum úr íbúðarhúsnæði sínu og koma í geymslu.

Það er líka mikilvægur sá þverpólitíski tónn sem hefur verið hér í dag og sú vinna sem allir stjórnmálaflokkar á Alþingi eru tilbúnir að leggja sig fram um að fara í; útfærslur á því hvernig við komum best Grindvíkingum til aðstoðar. Við þurfum líka að horfa raunsætt á þessa atburði og átta okkur á því að það er náttúran sem er við völd og við erum að reyna að bregðast við.

Það er líka ákaflega mikilvægt að það samstarf sem við erum með við bæjarstjórn Grindavíkur og Grindvíkinga alla haldi áfram. Ég vil segja: Þið Grindvíkingar góðir sem á horfið eigið og verðið að vera miðpunkturinn í þessari umræðu. Þið þurfið að fjalla um hvernig þið viljið sjá hlutina gerast, hvernig þið viljið sjá það samfélag verða.

Við sem samfélag á Íslandi getum vel ráðið við þetta verkefni saman. Það er margt í gangi. Það er unnið að varnargörðum. Það er verið að rannsaka öryggi með jarðvegssjám. Það eru endurbætur á því sem aflaga fer í hverjum atburðinum á fætur öðrum, hita og rafmagni komið á bæinn aftur og aftur þar sem jarðskjálftar og eldgos skemma.

Herra forseti. Það er liðin rétt rúm vika frá því að við sáum hraun flæða inn í byggðina í Grindavík og það var hrikalegt að sjá. Sú leið sem við í ríkisstjórn höfum ákveðið að fara gefur færi á yfirvegun. Hún gefur færi á því að við finnum skynsamlegar leiðir, leiðir sem leysa Grindvíkinga úr fjötrum. En tíminn líður. Ekki er langt síðan við stóðum við upphaf heimsfaraldurs og trúðum því að við myndum aldrei heilsast aftur, aldrei faðmast aftur, og svo leið tíminn.

Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra og formaður Framsóknar, sagði í sjónvarpsumræðum skömmu eftir gosið í Eyjum þegar umræður voru um flutning byggðarinnar upp á land: Vestmannaeyjar skulu rísa. Þau áform sem ríkisstjórn Íslands kynnti í dag gefa okkur færi á von, gefa okkur færi til að segja: Grindavík skal rísa.