154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:49]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa yfirferð um stöðu þeirra alvarlegu mála sem við stöndum frammi fyrir í Grindavík og þetta eru óvenjulegir tímar sem við lifum á hér sem samfélag, sem sterkt, mannlegt og heilbrigt samfélag, en ekki síst eru þetta erfiðir tímar fyrir Grindvíkinga. Þá skiptir máli að allir tónar sem eru slegnir, m.a. af hálfu stjórnmálanna, hljómi saman og séu skýrir, í þeim felist skýr skilaboð til Grindvíkinga, okkar fólks. Ég vil líka þakka fyrir þann fund sem við formenn stjórnmálaflokkanna áttum í morgun með ráðherrum úr ríkisstjórn þar sem var farið yfir stöðuna.

Við höfum lagt áherslu á það í Viðreisn að það verði unnið hratt og vel með það fyrir augum að koma öllum þessum mikilvægu málum í farveg og svara öllum spurningum Grindvíkinga. Þær eru ótal margar og þær eru mismunandi af hálfu Grindvíkinga. Þetta er ekki einsleitur hópur heldur fólk sem er með sín mismunandi viðhorf til lífsins, hvernig það vill tækla framhaldið, fara til baka eða halda því opnu eða fara aðrar leiðir. Allt þetta verðum við að hlusta á og leyfa þeim að eiga þann möguleika að velja þær sem þau telja best að fara.

Í morgun voru kynntir sjálfsagðir hlutir sem ég fagna um leið eins og að fara í leigugreiðslur, úr 75% í 90% tryggingu, það skiptir mjög miklu máli, húsnæðisstuðningurinn, fjölgun íbúða, bæði í gegnum Bjarg og Bríeti, allt mjög mikilvægt, einfaldar ákvarðanir að taka og styðja. Við í Viðreisn höfum talað um þjóðstjórn um þetta mikilvæga verkefni og ég vil í rauninni fagna því að það er að nást núna með þessum fundi sem við áttum í morgun. Ég vona að það verði þannig að ríkisstjórnin fari í það verkefni af heilum hug með okkur í stjórnarandstöðunni því að það er okkar sameiginlega verkefni að skila verkefninu skýru og kláru og heilu til Grindvíkinga þannig að þeir geti unnið úr sínum viðfangsefnum. Vestmannaeyjar hafa m.a. verið nefndar og ég held að það sé mikilvægt að líta til þeirrar reynslu sem þar var. Sumir hafa sagt að þegar eitthvað er unnið þverpólitískt þá taki það langan tíma. Nei, það þarf ekki að vera svo. Það snýst um verkstjórnina og það er hægt að vinna þetta hratt og vel. Við vitum hvað hvílir á Grindvíkingum, hvaða hugsanir þeir eru með og hafa sett fram og við þurfum einfaldlega að ná að svara þeim.

Sunnudagurinn 14. janúar var okkur öllum afar þungur en hann er líka ákveðin áskorun og prófsteinn á okkar samfélagsgerð. Það er ekki auðvelt að lifa með jarðskjálftum og þessum grimmilegu sprungum sem eru nú í Grindavík og núna með eldgosi og hraunrennsli. Það hefur í rauninni í á fjórða ár reynt á þessa miklu seiglu og þolinmæði Grindvíkinga með jarðskjálftunum og reynt verulega á innviði svæðisins og má segja að núna sé þolinmæðin svolítið runnin út því að Grindvíkingar kalla eðlilega eftir svörum. Þess vegna höfum við í Viðreisn, og ég undirstrika það, lagt áherslu á að hlustað sé á þeirra viðhorf og þeir fái þessa valkosti til að feta áfram sinn veg í sínu lífi. Það þýðir ákveðið svigrúm. En ég segi líka að þetta er risaverkefni. Við gerum okkur grein fyrir því og þess vegna lögðum við m.a. áherslu á það í Viðreisn að setja þjóðstjórn um verkefnið til þess að við getum unnið það hratt og örugglega.

En verkefnið er snúið. Ég ætla ekkert að draga dul á það. Það mun hafa áhrif á húsnæðismarkaðinn. Það mun hugsanlega hafa áhrif á verðbólgu, á ríkisfjármálin sem hafa ekki verið endilega undir bestri stjórn á umliðnum misserum. En þetta er viðfangsefni og þetta er verkefni okkar hér á þingi að leysa úr en ekki Grindvíkinga að hafa áhyggjur af. Það er okkar að leysa þessi verkefni og þess vegna er þeim mun mikilvægara að við gerum þetta þvert á flokka af því að við þurfum öll að bera ábyrgð á þessu. Þetta er ekki eitthvað sem núna afgreiðist til að mynda út frá fjármálum bara á nokkrum vikum. Þetta er verkefni sem tekur til þessarar ríkisstjórnar og annarra ríkisstjórna líka. Það er því mikilvægt að við sem erum í ólíkum flokkum öxlum öll þessa ábyrgð. Verkefnið er alveg skýrt; að taka utan um Grindvíkinga en ekki bara það heldur taka ákvarðanir og varða veginn fyrir þeirra hönd og fyrir samfélagið allt.