Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Herra forseti. Eins og áheyrendur heyra og hafa eflaust og vonandi gert sér grein fyrir á síðustu dögum og misserum þá ríkir mikill einhugur meðal þingmanna, milli stjórnar og stjórnarandstöðu, um að komið verði til móts við Grindvíkinga eins vel og kostur er. Fyrr í dag kynnti ríkisstjórnin hvar mál standa í sinni vinnu og kannski ekki margt sem kom á óvart í því. En þó, þar var staðfest að vilji sé til að tryggja eignir Grindvíkinga. Hvaða leið sem verður farin, hvernig sem þetta þróast þá virðast þingmenn allir, stjórn og stjórnarandstaða, vera að komast að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að sú leið verði að vera til þess fallin að tryggja eignir Grindvíkinga. Það er auðvitað mjög jákvætt.
En það voru kannski meiri tíðindi í því fólgin að í morgun skyldi vera ákveðið að unnið verði að þessu verkefni áfram formlega í sameiningu, í sameiningu allra flokka. Slík fyrirmyndir eru auðvitað til, m.a. eftir gosið í Vestmannaeyjum, en ég held að það sé mikilvægt að þetta skyldi þó liggja fyrir, að það næðist þessi samstaða þó að það eigi eftir að útfæra það. En sú útfærsla hlýtur að fela í sér að ólíkir flokkar komi að því að skoða hugmyndirnar, ræða þær sín á milli, að þetta verði ekki fundir eins og stundum er þegar talað er um samráð þar sem búið er að leggja línurnar, búið að taka ákvarðanir og svo eru þær kynntar fyrir hinum.
Í málum sem þessu þurfa ólík sjónarmið að takast á. Það eru ekkert ólík sjónarmið um markmiðið. Markmiðið hjá okkur öllum er nokkurn veginn það sama, en það kunna að vera ólík sjónarmið um leiðirnar. Það eru líka ólík sjónarmið um leiðirnar meðal Grindvíkinga, sem eiga auðvitað að leiða þetta og taka ákvörðun á endanum um hvernig mál verða til lykta leidd, hvernig Grindavíkursamfélaginu verður bjargað. En það verða líka fyrir vikið að fá að vera ólík sjónarmið þeirra stjórnmálamanna sem að þessu koma ef ástæða þykir til. Það er ekki gott í neyðarástandi að menn víki þá frá þeirri grundvallarreglu lýðræðisins að tekist sé á um ólíkar leiðir, ólíkar lausnir. Hugsanlega komast allir strax að sömu niðurstöðu um bestu leiðina, bestu lausnina, ef hún birtist allt í einu. En ef svo er ekki þá verðum við að geta rætt það. Við verðum að geta leyft okkur að ja, gagnrýna, a.m.k. benda á að aðrar leiðir kunni að vera betri.
Ég tel ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af slíku í tengslum við þetta mál því að þetta er svo gjörólíkt pólitísku argaþrasi þar sem hver og einn þingmaður eða hver og einn flokkur kann að byggja á sinni fyrir fram mótuðu sýn um samfélagið og hvernig beri að leysa öll þau mál sem við höfum tekist á við í áratugi eða árhundruð. Í þessu tilviki eru allir meira og minna á því að nú sé þetta bara spurning um að leita að bestu lausninni. Markmiðið er hið sama og ég efast ekki um að ef einhver heyrir af annarri og betri lausn en viðkomandi hafði haft í huga áður þá muni sá hinn sami skipta um skoðun. Ég er til í að skipta um skoðun þó að ég sé ekki búinn að fullmóta mína hugmynd að bestu lausn. En ég er sannarlega opinn fyrir hugmyndum hvaðan sem þær koma og auðvitað sérstaklega frá Grindvíkingum. Hafi mér dottið í hug að eitthvað eitt væri best og heyri svo af öðru þá mun ég aðlaga mig að því og ég efast ekkert um að aðrir stjórnmálamenn muni gera það líka.
En við verðum líka, núna þegar farið verður af stað með að leita að lausnunum, að gera okkur grein fyrir eðli stöðunnar og hversu gríðarlega stórt viðfangsefni þetta er. Því fylgir að við þurfum að sætta okkur við það að Ísland er ekki eins vel í stakk búið til að takast á við þetta og það ætti að vera eða gæti hafa verið. Þar með er ég ekki að segja að við munum ekki geta tekist á við þetta, alls ekki. En þegar við leitum leiðanna þá þurfum við engu að síður að líta á stöðuna eins og hún er. Ástæðan fyrir að ég nefni þetta er fyrst og fremst sú að við munum óhjákvæmilega þurfa að forgangsraða upp á nýtt. Við munum þurfa að forgangsraða í þágu Grindvíkinga, í þágu ástandsins þar og þess að takast á við þá stöðu. Ríkið hefur verið rekið með gegndarlausum halla núna ár eftir ár þannig að staða þess er ekki eins góð og hún ætti að vera til að takast á við áföll eins og þessi. Það þýðir að við þurfum að spara annars staðar.
Ýmsir málaflokkar hafa verið stjórnlausir. Hælisleitendamálin eru auðvitað þekkt dæmi þar sem á undanförnum árum hafa komið til landsins bara sem hælisleitendur, upp á von og óvon, um þrjár Grindavíkur. Og húsnæðismarkaðurinn er búinn að vera í óstandi. Áður en þessir atburðir hófust var hann það m.a. vegna stjórnleysis á öðrum sviðum, eins og ég nefndi, sem má segja um heilbrigðismálin, ekki hvað síst á sviði geðheilbrigðisþjónustu. Þar var neyðarástand fyrir. Í menntakerfinu eru gífurleg vandamál sem stafa af því að ekki hefur verið tekið á þeim málaflokki sem skyldi á undanförnum árum. Við ættum því að vera miklu betur í stakk búin til að takast á við vandann nú. En ástæðan fyrir að ég tel rétt að nefna þetta og minna á og ítreka er sú að þetta þýðir einfaldlega að við þurfum að gera betur. Við þurfum að forgangsraða í þágu Grindvíkinga. Ríkið þarf að spara til að geta ráðist í þær aðgerðir sem hér er þörf á, enda er kostnaðurinn smávægilegur í samanburði við hallarekstur undanfarinna ára, ég tala nú ekki um í samanburði við það fjármagn sem kom frá slitabúum bankanna, frá vogunarsjóðunum og öðrum kröfuhöfum þeirra í stórum aðgerðum á sínum tíma. Það voru stóraðgerðir á fjármálasviði.
Hér þarf stóraðgerðir sem varða, ekki bara fjármálin heldur líka líf og heilsu fólks og framtíð heils byggðarlags. Við höfum sýnt á undanförnum árum, Íslendingar, og áratugum að við getum tekist á við neyðarástand en eigi það að takast sem skyldi þá þarf tvennt að koma til a.m.k.: Áframhaldandi lýðræðisleg umræða, umræða um hvaða hugmyndir, hvaða lausnir eru bestar og ný forgangsröðun, forgangsröðun sem felur í sér brotthvarf frá þeirri stefnu sem hefur verið rekin á Íslandi undanfarin ár. Þetta tvennt eru grundvallaratriði; lýðræðisleg umræða og ný forgangsröðun. Og að sjálfsögðu eigum við í vinnu okkar sem fram undan er fyrst og fremst og umfram allt að líta til þarfa og vilja Grindvíkinga. Þeir verða að leiða það áfram hvernig þeirra samfélag og þeirra byggðarlag þróast. Stjórnmálamenn hér á Alþingi og aðrir munu, treysti ég á, fyrst og fremst vilja finna þær lausnir sem Grindvíkingar sjálfir vilja sjá.