Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir góða ræðu um málefni Grindvíkinga og aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að mæta þeirri erfiðu stöðu sem upp er komin. Í þessu langa almannavarnaástandi sem nú hefur varað í yfir fjögur ár hafa almannavarnir, Landhelgisgæslan og aðrir viðbragðsaðilar ótvírætt sannað gildi sitt og mikilvægi fyrir land og þjóð. Við höfum og komum til með að þurfa að reiða okkur á þessar mikilvægu stofnanir í komandi verkefnum til að standa vörð um líf og heilsu fólks sem og okkar mikilvægu innviði. Reynslan hefur sýnt okkur að það fyrirkomulag og uppbygging á viðbragðskerfi, kerfinu sem við eigum, hefur reynst vel og nýtur almenns trausts í samfélaginu. Þær mótvægisaðgerðir sem gripið hefur verið til hafa jafnframt sannað gildi sitt en þær stóru ákvarðanir sem ég hef tekið um uppbyggingu varnargarða hafa reynst þarfar, þeir hafa sannað gildi sitt og eru til þess fallnir að forða frekara tjóni. Við þurfum áfram að vinna að mikilvægum mótvægisaðgerðum, forða frekara tjóni og sinna mikilvægri verðmætabjörgun. Það er verkefni dagsins í dag og næstu vikna og mánaða.
Grindavík er um margt sérstakt samfélag þar sem mikil atvinna, samheldni og gróska hefur einkennt samfélagið. Hefur Grindavík þannig verið eitt af dugmestu sveitarfélögum landsins og ef eitthvert sveitarfélag getur byggt upp öfluga starfsemi á ný þá er það Grindavík. Stjórnvöld munu standa með Grindvíkingum í að takast á við stöðuna sem komin er upp og á sama tíma og við grípum Grindvíkinga munum við gefa þeim tækifæri til að byggja upp sitt samfélag á nýjan leik. Grindvíkingar hafa sýnt ótrúlega þrautseigju, æðruleysi og þolinmæði á þessum fjórum árum sem þessa jarðhræringar og umbrot hafa staðið yfir.
Ég biðla til Grindvíkinga um að sýna stjórnvöldum þolinmæði við að útfæra og koma í framkvæmd þeim aðgerðum sem nú er í vinnslu og undirbúningi. Það er ljóst að við erum komin á tímabil mikilla jarðhræringa og eldsumbrota. Því miður fylgir þessu mikil óvissa og munu aðgerðir okkar óhjákvæmilega vera því marki brenndar. Þá er jafnframt ljóst að augu okkar þurfa að vera á öllu suðvesturhorninu og geta því önnur sveitarfélög þurft að vera viðbúin auknum jarðhræringum og umbrotum. Markmið okkar núna er að tryggja öryggi Grindvíkinga og draga úr þeirri óvissu sem þeir upplifa í dag. Á sama tíma er það verkefni okkar að treysta undirstöðu bæjarins og taka nauðsynleg skref í átt að öruggri búsetu í Grindavík.
En við erum stöðugt minnt á að mennirnir áforma en náttúran ræður. Við höfum því miður ekki fulla stjórn á þessu verkefni enda hefur móðir jörð sýnt okkur að hún er við völd. Við munum þó gera allt sem í okkar valdi stendur til að gera líf Grindvíkinga bærilegt og skapa frekari forsendur til búsetu í Grindavík til framtíðar. Reynsla undanfarinna ára sýnir okkur að fyrirbyggjandi aðgerðir og vel ígrundaðar undirbúningur getur dregið úr áhættu og verndað líf og eignir. Þannig getum við best mótað öruggara umhverfi fyrir okkur öll og komandi kynslóðir.
Þá vil ég við þetta tilefni þakka öllum viðbragðsaðilum fyrir fumlaus viðbrögð og þeirra ómetanlega framlag við krefjandi aðstæður. Þeirra fórnfýsi og óeigingjarna starf verður seint fullþakkað. Það er einnig gott að finna þennan einhug og samtakamátt hér í þessu húsi og vænti ég þess að svo verði áfram í þessu vandasama og umfangsmikla verkefni sem við öll höfum hér fyrir framan okkur.