Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegur forseti. Fólk sem lendir í hverju áfallinu á eftir öðru eins og Grindvíkingar hafa orðið fyrir undanfarin ár nær því miður oft ekki að vinna úr og skilja allar þær upplýsingar sem á því dynja. Fólk í áfalli er dofið og á þar af leiðandi margt mjög erfitt með að leita sér hjálpar. Það er okkar að sjá til þess að þetta fólk fái þá hjálp sem það þarf á að halda. Samfélagið í Grindavík er í upplausn og ríkisstjórnin þarf að drífa í því að samþykkja að kaupa húsnæði þeirra sem vilja losna og það þarf að gera það strax og vinna það hratt. Þá er staða fjölskyldna sem eru búnar að yfirgefa Grindavík mikið áhyggjuefni og þá sérstaklega þeirra sem eru með börn og þá einnig þeirra fjölskyldna sem þurfa að hugsa um veika aldraða ættingja vegna þess að þeir hafa ekki aðstöðu til að vera á hjúkrunarheimili. Það er annað áfall ofan á áfall. Þetta þarf að leysa. Aldrað fólk inni á ættingjum í þessu ástandi — við verðum að sjá til þess að leysa það mál fljótt og auðveldlega, sérstaklega gagnvart því fólki sem er kannski líka veikt og hefur ekki aðstöðu til að annast sína ættingja. Fatlað fólk, við þurfum að taka sérstaklega á því og fólki sem er í félagslegum íbúðum í félagslega kerfinu. Þetta eru viðkvæmustu hóparnir. Þetta er fólk sem er þegar í áfalli vegna veikinda og þarf mest á okkur að halda.
Börnin í Grindavík eru í 64 skólum í 34 sveitarfélögum. Spáið í þetta. Maður heyrir af því að fólk sé að keyra austan úr sveit inn í Reykjavík til að fara með barnið sitt á leikskóla í Reykjavík en býr á Selfossi, þarf síðan að fara með annað barn í skóla og þarf síðan að fara í vinnu á Reykjanesi. Þetta er allt of mikið vesen ofan á allt það álag sem þetta fólk hefur orðið að þola. Þar af leiðandi verðum við að sjá til þess að taka á þessum málum strax. Því miður vill oft brenna við að við séum að mismuna fólki og ég hef þegar orðið var við mismunun, það eru ekki allir að sitja við sama borðið. Við verðum að hætta því og passa upp á að allir fái þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda.
Fyrir nær 50 árum síðan flutti ég til Grindavíkur til vinna, keypti mína fyrstu íbúð á Túngötu í Grindavík vegna þess að þarna var mikið af ættingjum mínum og þeir eru þar enn þá í dag, eiga sitt húsnæði. Einn ættingi minn á húsnæði sem er farið út af sprungum, annar rétt slapp við að fá hraun yfir sitt. Þess vegna segi ég: Við verðum að hugsa um það hvernig við ætlum að leysa þetta mál. Ef við ætlum að kaupa fleiri hundruð íbúðir, hvernig væri þá að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni til að þetta verði ekki verðbólguhvetjandi? Hvernig væri að hugsa í lausnum? Og númer eitt, tvö og þrjú, það sem við verðum að hafa alltaf að leiðarljósi: Ekkert um málefni Grindvíkinga án aðkomu Grindvíkinga.