Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Óvissa skapast þegar fólk hefur of litlar upplýsingar um atburð og afleiðingar hans á líf þeirra. Sú óvissa gerir það að verkum að það er erfitt að skipuleggja eða spá fyrir um framtíðina. Þegar óvissa er til staðar magnast upp mikil streita. Flest erum við vanaföst og viljum hafa hlutina eins og þeir hafa alltaf verið og þegar atburðir gerast í kringum okkur sem við höfum litla eða enga stjórn á skapast ávallt mikil óvissa. Á mínum 20 ára ferli við að bregðast við náttúruhamförum víða um heim hef ég ítrekað upplifað það hvernig óvissan getur lamað heilu samfélögin. En ég hef líka upplifað það hvernig sú óvissa hverfur þegar erfiðar ákvarðanir eru loks teknar. Þá fyrst getur fólk farið að byggja líf sitt upp á nýtt. Óvissa er mjög lamandi, sér í lagi þegar hún snýr að grunnþörfum eins og húsnæði, framfærslu eða líðan barnanna okkar. Þú getur ekki tekið ákvarðanir nema í stuttan tíma í senn. Þú sættir þig við aðstæður ef þú veist að þær vara kannski bara í einhverjar vikur. En ef þér er sagt að þær aðstæður muni vara lengur en ekki hversu lengi þá geturðu ekki skipulagt framtíðina.
Þó svo að ekkert okkar geti sett sig í spor Grindvíkinga þá höfum við eflaust öll einhvern tímann á lífsleiðinni upplifað það hvernig óvissan lamar okkur. Við þekkjum það líka flest hvað lífið varð miklu betra um leið og óvissan hvarf. Það er því eitt það mikilvægasta sem hægt er að gera akkúrat núna fyrir Grindvíkinga, að fara í aðgerðir sem draga úr eða fjarlægja með öllu þá óvissu sem þeir standa frammi fyrir.
Vísindamenn treysta sér ekki til þess að áætla hversu langur tími þarf að líða þar til öruggt verður aftur að búa í Grindavík. Við höfum séð, t.d. í tengslum við eldgosið í Fagradalsfjalli, að allt að ár getur liðið á milli atburða. Það væri því ekkert fjarri lagi að segja að eftir að vísindamenn telja að kvikusöfnun og landrisi sé lokið þurfi að líða eitt ár áður en við getum sagt að atburðunum í nágrenni Grindavíkur sé lokið. Þær viðgerðir á innviðum sem farið er í áður en atburðunum er lokið getur verið töpuðu vinna og þarf þess vegna að einblína á aðgerðir sem vernda verðmæti. Það hefur einnig komið fram að það muni taka sex til níu mánuði að laga alla innviði. Við getum því reiknað með því að það taki allt að eitt og hálft eða tvö ár áður en mögulegt verður fyrir fólk að flytja aftur í bæinn. Það eitt að ákveða að ekki verði flutt þarna inn næstu tvö árin er mjög erfið ákvörðun en hún hjálpar til við að draga úr þeirri óvissu sem er til staðar. Hún breytir líka algerlega þeirri sviðsmynd sem ríkið hefur sett upp um stuðning við íbúa Grindavíkur. Í stað skammtímalausna þarf að setja fókusinn á aðgerðir sem duga til a.m.k. tveggja ára.
Það er sorglegt að heyra að nú, átta dögum eftir að hraun rann inn í Grindavík, þurfi Grindvíkingar áfram að bíða í óvissu, í þrjár til fjórar vikur í viðbót, eftir því að alvörutillögur komi frá ríkisstjórninni. Og þó svo að það sé ánægjulegt að fara eigi í þverpólitískt samstarf um lausnir í samráði við Grindvíkinga þá hefði það samstarf hins vegar átt að vera löngu, löngu byrjað. Þannig hefði verið hægt að kynna lausnir í dag en ekki bíða með þær fram í miðjan febrúar. Það liggur nú á okkur sem hér sitjum að vinna hratt og vel saman í því að eyða óvissu Grindvíkinga, ekki um miðjan febrúar heldur í síðasta lagi í lok þessa mánaðar.