Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Nú hefur það gerst sem ég óttaðist mest þegar við fengum fyrst fregnir af því að jarðvegur væri tekinn að rísa við Svartsengi fyrir um fjórum árum síðan. Eldgos hefur ekki bara ógnað byggð á Suðurnesjum heldur hefur hraun flætt inn í Grindavík og tekið með sér þrjú hús, skemmt innviði bæjarfélagsins og laskað veitukerfi svæðisins. Staðreyndin er sú að við stöndum enn í miðjum atburði og óvissan er mikil um framtíðina. Það var þó fagnaðarefni að sjá varnargarða sanna gildi sitt en við verðum að gera ráð fyrir að gossprungur geti opnast innan þeirra eins og við sáum raungerast að hluta þann 14. janúar síðastliðinn. Almannavarnir, vísindamenn og björgunarsveitir hafa unnið þrekvirki á þessum tímum, í ljósi aðstæðna, og verður þeim seint fullþakkað sitt framlag.
Frú forseti. Fyrir Grindvíkinga einkennast undanfarnir mánuðir af ótta, óvissu, jarðhræringum, eldgosum, rýmingum, sprungumyndunum og ítrekuðu almannavarnaástandi. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér né hversu lengi við munum þurfa að glíma við náttúruöflin á Reykjanesi. Því er eina raunhæfa leiðin fólgin í forvörnum, æðruleysi, dugnaði og samkennd. Í mínum huga blasir við nýr veruleiki, þar sem ekkert lát er á jarðrisi við Svartsengi. Grindavík er á hættusvæði. Auðvitað er það Grindvíkingum ólýsanlegt áfall en einnig mikið áfall fyrir okkur Suðurnesjabúa og landsmenn alla. Mannauðurinn sem skapað hefur sterkt samfélag í Grindavík er ómetanlegur og nú er það okkar verkefni að sameinast um stuðning í verki. Í hjarta mínu hef ég ávallt hugsað til Grindvíkinga. Ég vil minnast sérstaklega á færslu sem Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, íbúi í Grindavík, orðaði svo vel daginn eftir að það gaus:
„Ímyndið ykkur að vera í þeirri stöðu að mega ekki fara heim. Horfa upp á húsið sitt brenna í beinni útsendingu, hús þar sem þú skapaðir minningar með fjölskyldunni þinni eða þar sem þú ætlaðir að skapa minningar með fjölskyldunni þinni. Ímyndið ykkur það að horfa upp á hluta af heimabæ ykkar renna undir hraun.“
Þetta eru þær tilfinningar sem Grindvíkingar bera innanbrjósts í stöðunni eins og hún er. Ímyndið ykkur bara þá stöðu og hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þetta ágæta fólk. Hún endar færsluna með því að segja: „Núna þarf einhver að grípa okkur áður en fallið verður hærra en það er nú þegar orðið, við getum ekki meira.“
Í samtölum mínum við bæjarbúa í Grindavík hefur komið fram sú ósk að þeir fái að ráða örlögum sínum sjálfir. Við eigum að koma til móts við þær óskir eftir fremsta megni. Trú mín á getu okkar Íslendinga við að veita stuðning og takast á við erfið og flókin verkefni þegar mest á reynir er bjargföst.
Virðulegur forseti. Kæru Grindvíkingar. Við munum verja bæinn, fyrirtækin, höfnina og innviðina. Við munum grípa ykkur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa þétt með ykkur. Og þegar fram líða stundir mun Grindavík rísa á ný.