Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Það eru rúmir tveir mánuðir liðnir frá því að Grindavíkurbær var rýmdur, frá því að náttúruöflin hröktu fjölskyldur af heimilum sínum og sundruðu rótgrónu og fallegu samfélagi. Atburðurinn fyrir rúmri viku síðan þegar sprunga opnaðist og hraun rann um götur bæjarins og brenndi hús var síðan til þess fallinn að auka enn frekar álagið á bæjarbúa sem nú þegar lifa í fullkominni óvissu um afkomu sína, um menntun barnanna sinna og um framtíðina. Það er gott að Alþingi sé loksins komið saman til að ræða þessa stöðu. Það hefði mátt gerast fyrr. Ég finn að samstaða þingmanna með Grindvíkingum er algjör. Hér eru allir sammála um að það þurfi að bregðast við og það þurfi að gerast strax. Þessa samstöðu þarf ríkisstjórnin að virkja.
Ég get ekki, virðulegi forseti, lýst vanmættinum og sorginni sem ég finn með Grindvíkingum gagnvart eyðingarkrafti náttúruaflanna. En samhugur og samkennd færa fólki ekki þak yfir höfuðið, fjárhagslegt öryggi eða mat á borðið. Hröð handbrögð þingsins í fjárhagslegum stuðningi og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis gera það hins vegar. Það er leiðin fram á við núna og við megum engan tíma missa. Starfshópur um framboð á húsnæði fyrir Grindvíkinga skilaði innviðaráðherra tillögum sínum fyrir síðustu jól. Niðurstaða hópsins var sú að það er til nóg af lóðum til uppbyggingar á nýju húsnæði verði ákveðið að fara þá leið. Það á sérstaklega við um sveitarfélög á suðvesturhorni landsins í nágrenni Grindavíkur: Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Voga og Hafnarfjörð. Við vitum ekki hvenær Grindavíkurbær verður aftur öruggur staður fyrir fjölskyldur til að búa sér heimili og ala upp börn og afstaða fólks til þess hvenær og hvort það vilji snúa aftur er skiljanlega ólík. Þess vegna þurfum við skýra valkosti fyrir fólk sem taka tillit til mismunandi aðstæðna og mismunandi skoðana íbúanna. Valfrelsi íbúa verður að liggja til grundvallar þeirri lausn eða þeim lausnum sem Alþingi ákveður.
Virðulegi forseti. Ef sú leið verður farin að flytja inn einingahús, eins og gert var eftir eldgosið í Vestmannaeyjum í janúar 1973, gætu slík hús verið tilbúin eftir u.þ.b. eitt ár. Þess vegna þarf að hefjast handa strax, því að þá væri fyrirséð að aðstæður og óvissa Grindvíkinga væri tímabundin í um 12 mánuði. Ef beðið er með slíka ákvörðun er bara verið að framlengja óvissu íbúanna. Miðað við þann fjölda lóða sem til staðar er ætti uppbygging einingahúsa að vera vel möguleg. Ríkið er sjálft stór landeigandi í Reykjanesbæ og því ættu að vera hæg heimatökin að skaffa land undir slík hús. Og ef allt fer á besta veg og Grindavíkurbær verður aftur öruggur innan ársins yrði uppbyggingin ekki til einskis, þvert á móti er þegar víðtækur húsnæðisskortur á landinu og hröð uppbygging myndi þá aðeins verða til þess fallin að draga úr framboðsskortinum og bæta hag allra. Fórnarkostnaðurinn af því að ráðast í slíka uppbyggingu strax er þar af leiðandi enginn.
Virðulegi forseti. Hér ríkir eining um að styðja við Grindvíkinga og hér ríkir að sama skapi eining um að sameiginlegir sjóðir verði nýttir til þess. Grindvíkingar eiga ekki sjálfir að bera kostnaðinn af þessari stöðu. Nú hefur ríkisstjórnin upplýst um aðgerðir til stuðnings Grindvíkingum sem lesa mátti um í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag. Margar af þeim aðgerðum þekkjum við og þar er verið að bæta í, bæði vegna þess að upphæðirnar hafa reynst of lágar en einnig vegna þess að fyrri stuðningur hefur ekki dugað til að koma Grindvíkingum í viðunandi húsnæði. Önnur úrræði virðast vera fyrirheit um að komið verði til móts við Grindvíkinga, m.a. um að þeir geti losað þá fjármuni sem þeir eiga í húsnæði í Grindavík og geti nýtt þá til þess að koma sér fyrir annars staðar. Ég lýsi fullum stuðningi við þessa aðgerð og geri þá kröfu að þetta komist til framkvæmda sem fyrst. Grindvíkingar eiga skilið fullan stuðning og þeir eiga skilið að ríkisstjórnin standi að honum með ábyrgum hætti.