Staða mála varðandi Grindavík, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegur forseti. Þetta er einkennilegur dagur fyrir margra hluta sakir. Dagur mótmæla á Austurvelli og dagur óvæntra frétta af starfssystur okkar, Svandísi Svavarsdóttur, sem glímir nú við illvígan sjúkdóm og við sendum henni sterka strauma og batakveðjur og víkjum að sjálfsögðu frá öllu tali um vantraust eða stjórnsýslulegar gloppur. En þetta er gleðidagur í því samhengi að hér er þingheimur sameinaður í hjartalagi sínu og við getum nokkurn veginn treyst á það hjartalag Íslendinga þegar svona vá brestur á, sem nú hefur blasað við um nokkurra vikna skeið á Suðurnesjum, að þá er ekki mikill ágreiningur um það hvort við eigum að koma til bjargar og sameinast um það að vera ein þjóð í einu landi. Því ber að fagna og það gefur okkur líka von sem erum að berjast sérstaklega fyrir þeim sem verst eru settir í samfélaginu, hópinn sem hefur flúið land vegna matarverðsins og leiguverðsins á Íslandi og átti nú skyndilega að skerða um 60.000 kr., 3.000 viðkvæmustu manneskjur Íslands, en því var afstýrt á síðustu stundu og verður vonandi afstýrt til lengri tíma þegar þingi vindur hér fram.
En ég er bjartsýnn eftir daginn í dag, ég er bjartsýnn eftir sameiginlegan morgunfund stjórnmálaflokkanna og ég er bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga sem við stöndum að sjálfsögðu öll með og ætlum að tryggja líf án þess að vera í svefnleysi af áhyggjum, fjárhagslegum vanda og óvissu um framtíðina. Það sem gefur líka tilefni til bjartsýni er sú staðreynd að í kringum Ásbrú er svæði í mikilli skipulagningu núna sem er kennt við Kadeco eða K64. Þar er verið að skipuleggja ný rými, húsnæði fyrir 1.500–2.000 manns og má bæta þar lengi við vel. Það er eins og skreppitúr úr austurhluta Reykjavíkur niður í miðbæ fyrir þá sem myndu kjósa að flytja þangað. Þar er stórt skólarými laust og til sölu og ég held að það væri ekki þungbært fyrir þá sem eru kannski að velta fyrir sér að víkja sér undan þessu jarðsprengjusvæði, að flytjast þangað í þeirri vissu að þarna er Reykjanestáin öruggt svæði fyrir eldgosum og jarðhræringum. Þetta var eyja löngu áður en gos og hraun tóku að falla.
Ég held að nú ættum við líka að taka til alvarlegrar umræðu þá ítrekuðu tillögu okkar í Flokki fólksins að nú klippum við út úr okkar vísitölu húsnæðisþáttinn þannig að við getum farið í þær framkvæmdir og fjárfestingar sem þarf; klippum, a.m.k. tímabundið, út húsnæðisþáttinn þannig að seðlabankastjóri fari ekki að gera okkur lífið leitt. En ég fagna umræðunni á þessum jákvæðu nótum og höldum áfram að sameinast frekar en að sundrast.