valdheimildir ríkissáttasemjara og kröfur aðila vinnumarkaðarins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og mig langar líka að þakka henni fyrir kveðjurnar sem ég mun bera hæstv. matvælaráðherra.
Í fyrsta lagi er það svo að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði starfshóp til að móta tillögur um embætti ríkissáttasemjara. Hv. þingmaður vísar hér til þeirra valdheimilda sem eru hjá öðrum sáttasemjaraembættum á Norðurlöndum og vissulega eru þær ólíkar því sem gerist hér á landi. Þær eru heldur ekki alveg eins milli annarra Norðurlanda. Þessi hópur hefur verið að störfum. Þar eiga aðilar vinnumarkaðarins aðkomu en þar hefur ekki enn fengist niðurstaða, svo það sé sagt. Ég held hins vegar að valdheimildir ríkissáttasemjara séu ekki vandamálið akkúrat núna, því breiðfylkingin og Samtök atvinnulífsins hafa svo sannarlega setið við samningaborðið. Það hljóp ákveðin snurða á þráðinn í síðustu viku en ég fagna því hins vegar að þau hafi sest aftur við borðið og eru að tala saman þó að það sé ekki enn búið að ná saman. Ég batt vonir við það að slíkir samningar gætu orðið liður í því að tryggja hér verðstöðugleika til lengri tíma því að þau voru að tala um samninga til lengri tíma. Ég ætla bara að leyfa mér að vera áfram vongóð þó að það hafi hlaupið snurða á þráðinn, um að það finnist einhver lending þar.
Þá kemur að aðkomu stjórnvalda sem hv. þingmaður spyr líka um. Það liggur alveg fyrir að fulltrúar breiðfylkingarinnar hafa kynnt þær hugmyndir sem þau hafa. Ég vil líka halda því til haga að við höfum verið á vettvangi þjóðhagsráðs, sem er sá vettvangur sem mér finnst hvað mikilvægastur í þessu, að ræða ýmsar tillögur sem eru tengdar því sem þau hafa verið að leggja til. Í kjölfar fundar okkar með þeim átti ég fundi með fulltrúum heildarsamtaka á opinberum vinnumarkaði þannig að ég myndi telja að við værum með nokkuð góða mynd af því hvað stjórnvöld geta gert til að greiða fyrir samningum.
Ég ætla hins vegar líka að halda því til haga (Forseti hringir.) að atburðir í Grindavík hafa auðvitað þjóðhagsleg áhrif (Forseti hringir.) og við munum þurfa að fara yfir möguleg áhrif þeirra á verðstöðugleika. En það liggur líka fyrir skýr vilji stjórnvalda til að gera sitt til að greiða fyrir kjarasamningum (Forseti hringir.) sem hafa það að markmiði að stuðla að verðstöðugleika og stöðugleika á vinnumarkaði.