stefna ríkisstjórnarinnar í málum hælisleitenda.
Frú forseti. Fyrir fáeinum dögum birti dómsmálaráðuneytið samantekt um stöðu hælisleitendamála á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Þetta var mjög þarft og gagnlegt plagg og aðkallandi en það í rauninni lýsti því sem hefur legið fyrir alllengi og þingmenn Miðflokksins hafa ítrekað reynt að benda á og vekja umræðu um. Það lýsir hreint ótrúlegri stöðu Íslands, sérstaklega í samanburði við önnur Norðurlönd, í þessum efnum. Þarna var sérstaklega fjallað um móttöku fólks frá Palestínu þar sem Ísland sker sig úr, eins og reyndar á öðrum sviðum þessa málaflokks en alveg sérstaklega hvað varðar Palestínumenn, því að miklu fleiri Palestínumenn hafa fengið hæli hér eða leitað hingað heldur en til hinna Norðurlandanna og þá er ekki einu sinni verið að tala um hlutfallslega; fleiri hingað til litla Íslands en til hinna landanna. Fyrir þessu eru auðvitað ákveðnar ástæður en eftir að stríðsátök hófust fyrir botni Miðjarðarhafs hafa hin Norðurlöndin, eins og fram kemur í þessari greinargerð, ekki opnað á fjölskyldusameiningar við það þó tiltölulega fáa fólk miðað við á Íslandi sem þangað hafði komið á síðastliðnum árum. Í Þýskalandi kom til umræðu að taka á móti hópi Palestínumanna og öryggislögreglan þar í landi sagði að það myndi kalla á sérstakar varúðarráðstafanir í ljósi þess hvernig ástand væri þar á svæðinu. Starfsmönnum þýskra hjálparstofnana eða stofnana sem störfuðu á Gaza var boðinn möguleiki á að koma til Þýskalands, 200 manns, en eftir viðtöl öryggisþjónustunnar við fólkið fékk aðeins um helmingurinn að koma til landsins. Hinir töldust of hættulegir. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Þrátt fyrir ágæta greinargerð, hver er stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki?