kjör íslenskra lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis.
Virðulegur forseti. Í bandormi fjármálaráðherra um gistináttaskatt o.fl. sem var til umfjöllunar hér á Alþingi fyrir jól tókst að lauma inn ákvæði a-liðar 11. gr. sem mælti fyrir um að lífeyrisþegar búsettir erlendis myndu missa persónuafslátt. Þetta er eins og að lauma inn í skjóli myrkurs einhverju til að klekkja á einhverjum til að ná af honum persónuafslætti. Við í Flokki fólksins tókum eftir þessu og kölluðum eftir því að þetta ákvæði yrði fellt úr lögum. Sú málamiðlun náðist að gildistöku þess var frestað. Það kom svo fjölda fólks í opna skjöldu þegar Tryggingastofnun sendi þeim bréf milli jóla og nýárs um að brátt myndu þau missa persónuafsláttinn og verða fátækari um sem næmi 65.000 kr. á mánuði. Fyrir mistök hafði enginn hjá Skattinum eða Tryggingastofnun tekið eftir því að búið var að fresta gildistöku þessa ákvæðis. Þarna kom í ljós nákvæmlega hvaða hópur yrði fyrir tekjuskerðingunni ef ákvæðið tæki gildi 1. janúar; fátækir öryrkjar og eldri borgarar sem hafa flúið dýrtíðina á Íslandi og sest að þar sem fólk á betri möguleika á að ná endum saman á lífeyri almannatrygginga og líka veikt fólk sem er að leita að betra og heitara loftslagi og þarf á því að halda. Þetta fólk verður fyrir alls konar skerðingum nú þegar fyrir það eitt að yfirgefa landið. Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra hvers vegna hennar ríkisstjórn taki persónuafsláttinn af fátækum öryrkjum og eldri borgurum sem eru búsettir erlendis. Voru allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar upplýstir um þetta og þá sérstaklega félags- og vinnumarkaðsráðherra? Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að umrætt ákvæði verði fellt brott áður en það tekur gildi 1. janúar á næsta ári?