kjör íslenskra lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis.
Frú forseti. Nú lá þetta fyrir í því frumvarpi sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram og ráðherrum og þingmönnum ætti þar af leiðandi öllum að vera nokkuð kunnugt um inntak þess frumvarps þótt ég ætli ekki að svara fyrir einstaka ráðherra eða þingmenn sem eru staddir hér í salnum. Almennt er ég þeirrar skoðunar að mikilvægasta breytingin sem við höfum gert, þessi ríkisstjórn, á skattkerfinu til að tryggja betur tekjujöfnun og þar með stöðu hinna tekjulægri sé að taka á ný upp þrepaskipt skattkerfi með nýju lægra skattþrepi. Það er jöfnunaraðgerð og þangað eigum við að stefna, í slíkt kerfi. Samhliða því eigum við að huga að því hvernig tilfærslukerfin geti fylgt verðlagsþróun og/eða launaþróun þannig að það verði ekki óeðlileg gliðnun í kerfinu. En þegar við gerðum skattkerfisbreytinguna á sínum tíma skrifuðum við það inn í lögin að skattþrepin fylgja í raun og veru sömu vísitölu ásamt 1% hagvaxtarauka. Við erum þannig ekki að sjá þessa gliðnun verða í skattkerfinu sem varð hér í fyrri tíð þegar efra þrepið fylgdi annarri vísitölu en í neðra. Og af því að hv. þingmaður spyr bara almennt um stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu máli þá held ég að ég hafi nú nokkurn veginn farið yfir hana. En hvað varðar þetta ákvæði þá var því, eins og kunnugt er, frestað hér við afgreiðslu málsins og það var gert með þeirri skýringu að það þyrfti að kanna áhrif ákvæðisins betur og afla frekari upplýsinga um þá sem kynnu að verða fyrir áhrifum þegar ákvæðið tæki gildi. Þetta les ég upp úr nefndaráliti meiri hlutans. Þannig að ég lít svo á að nú sé tíminn til að skoða þetta betur, hvaða hópur þetta sé, hver áhrifin verða. Það er sú vinna sem meiri hlutinn kvað á um að ráðist yrði í og ég vænti þess að málið verði því aftur tekið upp á vettvangi efnahags- og viðskiptanefndar áður en frekari ákvarðanir eru teknar.