154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

kjör íslenskra lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis.

[17:28]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Þessi hópur öryrkja og aldraðra sem er búsettur erlendis hefur þegar verið sviptur heimilisuppbót, aldursuppbót, framfærsluuppbót … Það er búið að taka af þessu fólki fyrir það að flýja land. Ég spyr: Nú eru þessir einstaklingar þarna og það er eingöngu Tryggingastofnun ríkisins sem er að taka persónuafslátt af þessu fólki, en hvað með þá einstaklinga sem fá 60% frá lífeyrissjóði og 40% frá Tryggingastofnun? Það er bara tekið af þeim sem fá frá Tryggingastofnun með skattkort en ekki af þeim sem fá frá lífeyrissjóði. Hvernig í ósköpunum getum við búið til svona kerfi og sagt að það sé eitthvert réttlæti í þessu? Við erum að mismuna fólki gróflega. Ég trúi ekki öðru en að þetta verði dregið til baka. Við getum ekki leyft okkur að nota persónuafslátt, 65.000 kr., til að klekkja á þessu fólki. Fólk var í öngum sínum. Og þetta er gert örfáum dögum fyrir áramót og það eru engar upplýsingar. (Forseti hringir.) Fólk er hvergi upplýst um þetta (Forseti hringir.) fyrr en á síðustu stundu. Meira að segja var þetta svo gróft að það var tekinn persónuafsláttur af fólki í tvo daga, (Forseti hringir.) tekinn af því, sem er ólöglegt.